Fyrirhuguð kaup Landsbankans á TM, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra.
Frú forseti. Það verður að segjast að það er nokkuð sérstakt að koma hér upp í dag að ræða kaup Landsbankans á TM þegar við höfum raunverulega afskaplega lítið í höndunum varðandi þessi fyrirhuguðu viðskipti. Það verður hins vegar að segjast að það kemur nokkuð spánskt fyrir sjónir að ríkisstjórnin hafi ekki verið upplýst um áform Landsbankans um að kaupa TM af Kviku banka. Ríkið heldur á nánast á öllum eignarhlut í Landsbankanum og því sætir furðu að ekki hafi verið farið með þessi áform til Bankasýslu ríkisins sem nú hefur farið fram á að aðalfundi bankans skuli frestað. Það má velta því fyrir sér hvort þessi gjörningur rúmist innan eigendastefnu.
Hér er um að ræða verulega stór viðskipti, um 30 milljarða kr. fjárfestingu, og maður skyldi halda að viðskipti af slíkri stærðargráðu væru að öllu jöfnu borin undir stærstu eigendur. Það kann hins vegar að vera að þeir sem starfa í fjármálafyrirtækjum líti ekki á ríkið sem raunverulegan eiganda en við höfum nú séð ýmis furðulegheit á síðustu árum þegar kemur að verklagi og fagmennsku. Þetta er menning sem ég tel að þörf sé á að uppræta. Ég tel að það sé mikill meiri hluti samt sem áður sammála um að það sé hvorki skynsamlegt né æskilegt að ríkið sé stór eigandi í fjármálakerfinu til lengri tíma með allri þeirri áhættu sem því fylgir. Staðreyndin er auðvitað sú að ríkið fékk ýmis fjármálafyrirtæki í hendurnar við afnám hafta á sínum tíma og hefur alveg frá þeim tíma verið að endurskipuleggja endurreisn bankakerfisins í heild og í því samhengi er mikilvægt að vanda vel til allra verka.
Í ljósi þess sem við gengum í gegnum síðastliðið sumar, eftir sölu 22,5% eignarhlutar Íslandsbanka, var afstaða ríkisstjórnarinnar áréttuð hvað það varðar að eignarhald yrði óbreytt í Landsbankanum. Á meðan svo er er að mínu mati mikilvægt að leggja áherslu á það að við erum með stjórnendur bankans. Við erum með bankaráð sem er í daglegum rekstri bankans. Það er ljóst að þeir stjórnendur hafa í þessu tilfelli metið þetta sem skynsamlega ráðstöfun, væntanlega til að tryggja einhvers konar hagræðingu eða samkeppnishæfi bankans á markaði. En að sjálfsögðu, og ég ítreka það, er það afar óheppilegt, svo vægt sé til orða tekið, að eigendur hafi ekki verið upplýstir um þessi áform með afgerandi hætti.
Ég held, frú forseti, að það sé mjög mikilvægt nú þegar við erum að losa um eignarhald ríkisins í bönkunum og nú þegar liggur fyrir að klára sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka, að fá reynslu af nýjum eigendum áður en lengra er haldið. Þarna getur Landsbankinn verið ákveðið aðhald enn sem komið er. Markmiðið með eignarhaldinu hefur verið að stjórnvöld hafi ráðandi ítök í a.m.k. einni fjármálastofnun sem þjónustar almenning og fyrirtæki og hefur höfuðstöðvar hér á landi. Þannig tryggja stjórnvöld að almenn, vönduð og traust fjármálaþjónusta standi öllum til boða óháð búsetu.
Að þessu sögðu er ég samt sem áður ekki hlynntur því að fyrirtæki í eigu almennings séu í stórum stíl að kaupa fyrirtæki upp á almennum markaði. Hér er auðvitað um gríðarlega mikla fjármuni að ræða, um 30 milljarða. Ég myndi heldur, svo að ég lýsi minni persónulegu skoðun á þessu, vilja sjá þá fjármuni fara í niðurgreiðslu skulda í gegnum ríkið eða í innviðauppbyggingu eða það sem ég hef oft áður nefnt; hafi þessi fyrirtæki raunverulega getu til að greiða hátt í 30 milljarða í reiðufé þá myndi ég fremur vilja sjá þau standa með almenningi og fyrirtækjum í ólgusjó líkt og við höfum verið að ganga í gegnum síðustu mánuði.
Að lokum vil ég árétta að það er stefna míns flokks að selja ekki eignarhlut ríkisins í Landsbankanum og það er alveg skýrt og sú stefna er óbreytt. Þá tel ég einnig í þessu máli mikilvægt að fá mynd af því hvernig samskipti hafi verið á milli bankaráðs Landsbankans og Bankasýslunnar síðustu mánuði og ár. Þá tel ég, áður en lengra er haldið, að það sé jafnframt mikilvægt að móta skýra eigendastefnu fyrir banka og fjármálafyrirtæki. Slíkt gæti, virðulegur forseti, komið í veg fyrir mál sem þessi.