Náttúruverndar- og minjastofnun.
Herra forseti. Hæstv. ráðherra hefur sannarlega reifað þetta frumvarp. Hann tók nokkur hliðarspor í lokin og fjallaði aðeins um sendiherrafrumvarpið og ég ætla bara að spara mér það að fara í þá umræðu. Í sjálfu sér get ég alveg verið sammála því að það getur verið nauðsynlegt að sameina ríkisstofnanir og það er ekkert að því að sameina ríkisstjórninni í mörgum tilfellum. En það er mjög gott, þegar menn eru að gera það, að sameina þá þær stofnanir sem passa saman. Við erum nú nýlega búin að sjá það að svona restin af Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins rann inn í Nýsköpunarmiðstöð sem sameinaðist svo Íbúðalánasjóði í Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Það er alveg sameining en ef þú skoðar þá sameiningu þá sérðu það að eðli starfanna inni í þessum gömlu stofnunum og nýju hefur gjörbreyst. Það eru t.d. allir sérfræðingar, allir arkitektar og verkfræðingar, meira og minna farnir og þetta er orðin einhver greiningardeild sem er rekin áfram af lögfræðingum og viðskiptafræðingum og einhverju svoleiðis. Ég held að það hafi ekki verið til góðs.
Það er nú ástæðan fyrir að ég kem hérna, vegna þess að mér finnst þetta alveg áhugavert mál að mörgu leyti. Frá landnámi höfum við Íslendingar verið mjög meðvituð um stórkostlega náttúru sem hefur umlukið okkur þó að við höfum auðvitað á misjöfnum tíma eftir tíðarandanum umgengist hana á misjafnan hátt og ekki alltaf vel. Við höfum líka átt sögu um minjavernd, margar aldir aftur í tímann, en meðvitund um minjavernd og mikilvægi hennar hefur aukist mjög síðustu áratugi. Það er t.d. eiginlega ekkert talað í frumvarpinu um mikilvægi húsverndar og ég skil það ekki. Mig bara langar að spyrja ráðherra í fyrra andsvari hvort hann telji ekki hættu á að lítil stofnun eins og Minjastofnun, sem er þar að auki fjársvelt og það kemur fram í skýrslu Birgis Þórarinssonar, verði undir. Ráðherra má aðeins koma inn á það líka með hvaða hætti þessi skilvirkni mun birtast.