Náttúruverndar- og minjastofnun.
Herra forseti. Ég veit ekki alveg hvert hæstv. ráðherra er að fara með þessum svörum hérna. Í fyrsta lagi kemur þetta náttúrlega kjördæmum ekkert við. Við erum annars vegar að tala um náttúruvernd og hins vegar erum við að tala um minjavernd, húsaarfinn okkar, gamlar fornminjar. Hvort tveggja mjög mikilvægt. En þetta eru eðlisólíkar stofnanir, annars vegar náttúrustofnanirnar þrjár og svo Minjastofnun. Þær sinna ólíku hlutverki. Minjastofnun er eftirlitsstofnun sem tekur ákvarðanir um nauðsynlegar rannsóknir, veitir leyfi fyrir vísindarannsóknum, breytingum á friðuðum húsum og friðlýsingu húsa á meðan eðli náttúruverndar allt annað. Ég spyr ráðherra fyrst hvort hann sé ekki sammála mér um að þetta séu eðlisólík verkefni. Það er nú það fyrsta.
Í öðru lagi spyr ég, af því að hæstv. ráðherra segist bera minjaverndina fyrir brjósti og ég ætla ekki að efast um það þó að við kunnum að vera ósammála um nálgunina við það. En nú hafa nánast allir starfsmenn Minjastofnunar lagst hart gegn þessu og draga einmitt fram ókostina við þetta; annars vegar smæðina gagnvart þessum stóru stofnunum og hins vegar hvað þau eru ólík, hlutverkin. Ég spyr ráðherra hvort hann sé mér sammála um að þetta séu eðlisólík verkefni fyrir það fyrsta og í hverju samlegðin felist þá í því að steypa þessu saman. Og í öðru lagi væri gaman að vita hvort ráðherra hefur skoðað fyrirkomulag af þessum toga í nágrannalöndum okkar, hvort almennt hafi menn verið að feta þær slóðir í nágrannalöndunum að slengja náttúruverndarstofnununum og minjastofnununum saman. Ég efast reyndar um að hann finni dæmi um það en það væri mjög gott ef hann gæti það.