Náttúruverndar- og minjastofnun.
Virðulegi forseti. Ég veit ekki alveg hvert hv. þingmaður er að fara. Það er ekki verið að breyta fyrirkomulagi húsverndar í stjórnkerfinu og ekki er verið að gera breytingar á sjóðnum tveimur, fornminjasjóði og húsafriðunarsjóði. Það liggur fyrir að það þarf að gera heildarendurskoðun á minjalögunum og þar voru hús tekin sérstaklega til umfjöllunnar. Húsvernd er undir Minjastofnun í dag og verður þá undir nýrri stofnun. Það er komin þörf fyrir einföldun á stjórnsýslu, m.a. á friðlýstum svæðum. Er hv. þingmaður í fullri alvöru að tala um að við eigum ekki að líta á hvort tveggja á friðlýstum svæðum? Nú er ég að vinna að friðlýsingu á Grafarvogi, af því að hv. þingmaður vill ekki ræða um sitt kjördæmi. Ég skal tala um mitt. Á ég eingöngu að líta á náttúruminjar en ekki menningarminjar þegar ég er að friðlýsa Grafarvoginn? Í alvöru? Ég skil ekki af hverju hv. þingmaður tekur því illa að ég sé að minnast á hans kjördæmi. (LE: Ég var ekkert að taka því illa. Ég sagði að þetta væri ekki kjördæma …) Nú er hv. þingmaður að kalla fram í af því að þetta fór illa í hann. Landið samanstendur af kjördæmum og ég var að nefna hér dæmi um svæði þar sem menn verða að líta bæði á náttúruminjarnar og menningarminjarnar og það er algerlega ljóst að ef þú ert með stærri og öflugri stofnun sem er að líta á menningarminjar, sem eru miklu fleiri heldur en fólk gerir sér grein fyrir á Íslandi og er alls ekki gert nógu hátt undir höfði, þá erum við að styðja og styrkja minjavernd á Íslandi. Það liggur alveg fyrir. Þannig að ég verð að viðurkenna það — og af því að hv. þingmaður nefnir önnur lönd; sko, til upplýsingar þá er erum við þó nokkuð minna land heldur en gengur og gerist annars staðar, þ.e. fámennara, en t.d. Norðurlöndin. Ég held að ég og hv. þingmaður séum sammála um það. Það er á mörgum sviðum þar sem við þurfum að gera hlutina (Forseti hringir.) með öðrum hætti heldur en annars staðar. En það liggur alveg fyrir að hér eru tækifæri til að styrkja (Forseti hringir.) minjaverndina, það er algerlega ljóst. Ég hvet hv. þingmann til að skoða það. (Forseti hringir.) Og ég vek líka athygli á því, af því að við erum að tala um stofnanir (Forseti hringir.) eins og Vatnajökulsþjóðgarð og Umhverfisstofnun, (Forseti hringir.) að við verðum að líta á minjaverndina þar líka. (LE: … þvert á kjördæmin.)
(Forseti (AIJ): Forseti minnir hv. þingmenn á að gefa ræðumanni hljóð og hæstv. ráðherra á að virða tímamörk.)