Náttúruverndar- og minjastofnun.
Herra forseti. Þetta er mikið mál en það sem mig langaði að spyrja út í og fá frekari upplýsingar um er að það kemur fram í kostnaðarmati að þetta muni ekki hafa neinn teljandi kostnað í för með sér, en samt á að efla alla þjónustu. Jú, fyrst um sinn mun verða einhver breytingakostnaður, en síðan fjallaði ræðan að einhverju leyti um að efla allt úti á landi. Og af því að menn eru nú farnir að ræða um kjördæmi: Stendur til að hæstv. ráðherra ætli að draga saman hér á höfuðborgarsvæðinu og efla starfsemina úti á landi? Hvernig kemur þetta heim og saman?
Það eru ýmis sjónarmið fyrir því að vera með staðbundnar stofnanir. Það er ekki alveg hægt að strika yfir það. Þá eru menn auðvitað að verja fjármunum og peningum, t.d. eru sveitarfélögin — þess vegna höfum við sveitarfélög en ekki bara eitt ríki — að verja þeim fjármunum til verkefna sem þau þekkja til og forgangsraða eftir því sem þau þekkja til í nærumhverfinu. Það er svona hugmyndin að því, af því að það var spurt hvaða hvati væri hér á bak við. En það er líka mjög mikilvægt hvernig menn nálgast svona sameiningarumræðu, reyna að nálgast það með jákvæðum blæ, að það séu tækifæri í þessu og að menn setji sér mælanleg markmið og það felist tækifæri í þessu. Eflaust gera þau það en venjan við svona skipulagsbreytingar er að þá fer framleiðni niður á við fyrst um sinn og ef ekki er staðið vel að hlutunum í byrjun þá getur jafnvel orðið upplausn. Það væri áhugavert að fá fram hjá hæstv. ráðherra annars vegar hvar kostnaðinn lendir þegar menn eru að efla úti á landi og hvort það verði dregið saman á höfuðborgarsvæðinu.