Náttúruverndar- og minjastofnun.
Virðulegi forseti. Sem formaður umhverfis- og samgöngunefndar hef ég hlýtt á framsögu og ræður hér í dag sem eru gott veganesti inn í vinnu nefndarinnar ef málinu verður vísað þangað í framhaldinu. Hér hafa þingmenn talað nokkuð skýrt og augljóslega er margt þarna sem er allrar athygli vert fyrir okkur að vinna með og við þurfum saman að ná lendingu með eins og líka hefur komið fram. Ég horfi fram til þeirrar vinnu okkar og auðvitað tengist þetta líka fleiri málum sem við erum með til úrvinnslu í nefndinni. Margt er skýrt sem komið hefur fram í umræðunni, ekki bara það sem rakið var m.a. í fyrirvara hv. þm. Orra Páls Jóhannssonar áðan varðandi til að mynda minjaverndina, Minjastofnun, að það þyrfti að huga sérstaklega að þeim málum og taka sér góðan tíma í að fara yfir þann málaflokk enn betur og hvernig við höldum sem best á honum. Ég heyrði ekki betur en að fleiri þingmenn sem tóku þátt í umræðunni töluðu í sömu veru, til að mynda hv. þm. Logi Einarsson. Þingmenn sem hafa tekið til máls hafa vakið sérstaklega athygli á þessu og ég held að mikilvægt sé líka að hæstv. ráðherra skilji þá umræðu og hvað í henni felst. Við erum að fara að vinna með þetta mál og þá líka á þeim grunni, eins og hér hefur rækilega komið fram í umræðu um málið í dag. Ég vildi bara árétta það og sömuleiðis taka undir þann fyrirvara frá mínum þingflokki sem kynntur var, þannig að ef það hefur ekki skilist þá skiljist það hér að það verður að sjálfsögðu horft til þess sem komið hefur fram. Þá er kannski ekki ástæða til að vera mikið að rökræða þau mál í bili, enda er þetta á leið inn í nefndina til frekari úrvinnslu.