154. löggjafarþing — 90. fundur,  21. mars 2024.

niðurdæling á vatni í Straumsvík .

[10:36]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka svarið en við vitum að hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra var að svara hér og hann sagði að það væri verið að binda koltvísýring í jörðu. En á sama tíma og það á að fara að dæla þessu niður er eldgos við hliðina sem er að spúa út eiturefnum í loftið. Hvað getur þessi stöð sett mikið niður með þessu? Jú, það tekur kannski eldgosið tvo, þrjá klukkutíma að menga um nákvæmlega það sama og tekur einhver ár að dæla þarna niður. Hvernig í ósköpunum getur umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra varið það? Ég segi að það er eins og að hengja um hálsinn á sér gullverðlaun í heimsku að leyfa svona hluti. Hann er umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og hann á að sjá til þess að þetta sé ekki leyft. Hann verður að taka höfuðið út úr þessu eiturlofti ríkisstjórnarinnar og koma yfir til okkar í stjórnarandstöðunni og fá hreint loft (Forseti hringir.) og stöðva þetta vegna þess að annars er eitthvað skrýtið í gangi, þetta getur ekki gengið. Það er verið að plata almenning, kostnaðurinn er gífurlegur og það er bara verið að gera fólk að fíflum.