fjármögnun kjarasamninga og áhrif á samgönguáætlun.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og fullkomlega eðlilegt að velta vöngum í þessum sal yfir þessari stöðu. Ég tek undir að það voru ákveðin vonbrigði að vextir skyldu ekki lækka þó ekki væri nema örlítið til að viðurkenna í verki það sem var sagt í texta og tali, að kjarasamningarnir og nálgun stjórnvalda við þá væri jákvæð, að allir hefðu sömu sýn á að mikilvægast væri að ná niður verðbólgu og vöxtum.
Þá er spurt: Hvernig á að fjármagna aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar? Við erum auðvitað að vinna í þessari fjármálaáætlun og kemur engum á óvart að það hefur aðeins dregist. Það er auðvitað áskorun þegar við erum annars vegar að koma fyrir talsverðum útgjöldum vegna hans en einnig auðvitað öðrum óvæntum útgjöldum sem við þekkjum vegna náttúruhamfara sem eru tímabundin. Þá þarf auðvitað að horfa á málið í heild sinni. Það er auðvitað þannig að nokkuð stór hluti þeirra fjárframlaga sem eru hugsuð til húsnæðismála voru þegar í fjármálaáætlun í dag og þar af leiðandi má alveg halda því fram að húsnæðismálin í þessum 80 milljarða pakka séu einhverjir 46 milljarðar. Þar af er hluti einskiptiskostnaður, sem væri alveg hægt að taka tímabundið lán fyrir og er skynsamlegt í efnahagslegum tilgangi, sem fellur til á þessu ári þannig að útgjöld þessa árs eru til þess að gera mjög lág, ég held að það séu 6,5 milljarðar sem þarf að koma fyrir í 1.500 milljarða útgjöldum ríkissjóðs og ætti ekki að vera stórkostlegt áfall eða verkefni.
Inn í síðan framtíðina mun auðvitað skapast ávinningur af því að við náum niður verðbólgu og vöxtum en ég sé ekki fyrir mér niðurskurð á samgönguáætlun og fæ kannski að koma aðeins inn á það á eftir. (Forseti hringir.) Ég sé meira fyrir mér að við erum ekki í færum akkúrat núna að fara að bæta í, sem væri kannski þörf á vegna innviðaskuldarinnar sem við erum með, (Forseti hringir.) ekki síst á samgöngusviðinu.