154. löggjafarþing — 90. fundur,  21. mars 2024.

fjármögnun kjarasamninga og áhrif á samgönguáætlun.

[10:46]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Það sem ég vildi nú leggja áherslu á á þessari mínútu, og við getum auðvitað ekki dýpkað umræðuna mjög mikið, er að við erum með gildandi fjármálaáætlun og þar eru fullt af hlutum fjármagnaðir. Ég hefði haft væntingar sem samgönguráðherra um að við værum komin lengra. Það er hins vegar þensla í samfélaginu og það er líka ein af aðalástæðunum sem seðlabankastjóri bendir á og það hefur reyndar verið gríðarlegur hagvöxtur á síðustu árum, langt umfram það sem gott er að takast á við, einhver 9,2% á árinu 2022 sem er ævintýralegur hagvöxtur. Það sem ég er að segja er að við munum þurfa að raða því inn næstu árin miðað við þá hagspá sem við erum að horfa á núna næstu fimm árin, sem mun að sjálfsögðu breytast um leið og við náum þessu jafnvægi og efnahagurinn fer aftur að vaxa, en við þessar aðstæður þurfum við að láta það ríma við hagspá. Það þýðir að við munum ekki fá aukningu á sama tíma og mörg verð hafa vissulega hækkað, þ.e. verkefni sem eru á samgönguáætlun. (Forseti hringir.) Samgönguáætlun er hérna í þinginu og ég sé fyrir mér að við þurfum í mörgu að sætta okkur við að þurfa að teygja einhverjar tímalínur. (Forseti hringir.) En niðurskurður er ekki í áætlunum og samgönguáætlun er hérna í þinginu og forgangsröðun hennar er hér. (Forseti hringir.) Við munum svo bara að glíma við það.