154. löggjafarþing — 90. fundur,  21. mars 2024.

uppfærsla samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.

[10:48]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Ég er á svipuðum slóðum og fyrirspyrjandi hér á undan. Það er heilt árið liðið frá því að ákveðið var að uppfæra samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og enn bólar ekkert á niðurstöðum um þá uppfærslu. Það er bagalegt, ekki síst í ljósi þess að þessi uppfærsla þarf að liggja fyrir ef við ætlum að ná að afgreiða samgönguáætlun frá þinginu á yfirstandandi þingi. Framkvæmdahluti hennar miðast við upphaf þessa árs eins og allir vita og töf getur því haft áhrif á framkvæmdir fyrirhugaðar á þessu ári. Hæstv. innviðaráðherra gaf sterklega til kynna í fjölmiðlum á dögunum að með nýrri fjármálaáætlun, sem við bíðum líka eftir, mætti gera ráð fyrir niðurskurði og/eða frestun opinberra framkvæmda. Ég hef áhyggjur af því. Eins og hér hefur fram komið þá vex innviðaskuldin bara og eftir því sem hún vex þá eykst samgöngukostnaðurinn í raun og veru.

Mig langar því að nota þetta tækifæri til að spyrja ráðherrann í fyrsta lagi um það hvenær þessi uppfærsla líti dagsins ljós á samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og geti því orðið hluti af umfjöllun hv. umhverfis- og samgöngunefndar um samgönguáætlun, enda órjúfanlegur hluti hennar. Það er bagalegt að þurfa að bíða svona lengi. Ég ætla að halda því fram hér að þær framkvæmdir sem búið er að skrifa inn í tillöguna eins og hún er núna séu ekki bara nauðsynlegar heldur þjóðhagslega hagkvæmar. Þær stuðla að greiðari samgöngum, hagkvæmari samgöngum og það þarf að huga að því að ef stjórnvöld hyggja á einhverja frestun framkvæmda vegna kjarasamninga og þenslunnar í samfélaginu þá er það þannig á höfuðborgarsvæðinu að þessar framkvæmdir hanga allar saman, t.d. við almenningssamgöngurnar, við borgarlínuna, þannig að frestunin kæmi sér mjög illa.