154. löggjafarþing — 90. fundur,  21. mars 2024.

uppfærsla samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins .

[10:52]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og það gleður mig að heyra að það gangi vel með uppfærslu höfuðborgarsáttmálans og þar sé á von á jákvæðum tíðindum. Eins og ráðherrann bendir á og hefur verið bent á hér er mikil arðsemi af þessum framkvæmdum og það skiptir líka máli að forgangsröðunin hér í vinnu þingsins vegna samgönguáætlunarinnar taki tillit til þess. Ég tek undir með hæstv. ráðherra að auðvitað þurfum við að nota samvinnuleiðina líka og ég held að það sé tiltölulega góð samstaða um það hér í þingsalnum. Vandinn hefur verið, eins og ég hef skilið það, að við höfum ekki fengið þá fjármögnun sem við hefðum þurft í þær framkvæmdir sem þar eru undir. Ég á von á því að það gildi ekki um Sundabraut sem vissulega er á áætluninni og ef ég man rétt þá kemur hún inn árið 2026.

Mig langar að nota þessar örfáu sekúndur sem hér eru eftir til að inna ráðherrann betur eftir rekstri almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu, hvort ekki sé örugglega (Forseti hringir.) verið að spýta í þar.