154. löggjafarþing — 90. fundur,  21. mars 2024.

styrking lagaramma til varðveislu auðlinda.

[10:55]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Forseti. Undanfarið höfum við fengið að heyra af ýmsum nýstárlegum og stórkarlalegum hugmyndum um auðlindanýtingu. Það á að mala niður heilu fjöllin og senda úr landi. Það á að taka glefsu úr Mýrdalssandi, trukka hana yfir allt Suðurlandið og senda úr landi. Það er búið að drita niður hugmyndum um vindorkuver út um allar koppagrundir og það virðist enginn skortur vera á fyrirtækjum sem kalla á gríðarlega vatnsnotkun án þess að það liggi endilega fyrir hvort sú auðlind sé búin undir þá ásókn.

Til hliðar við þessa þróun eru jarðir farnar að skipta um eigendur á nýjum forsendum. Þær eru í auknum mæli keyptar af einhvers konar lukkuriddurum, fólki sem ásælist eina eða aðra auðlind frekar en að land nýtist til búreksturs. Þessi þróun lýsir skýru stefnuleysi. Þrátt fyrir að við segjum flest að við viljum halda landinu öllu í byggð þá fjölgar stöðugt í hópi landlausra búfræðinga sem geta ekki keppt við fjármagnsöflin. Og hér þarf ég örugglega ekki að minna hæstv. ráðherra á ályktun búnaðarþings frá því fyrr í vikunni þar sem það áréttar að til að auka fæðuöryggi og tryggja matvælaframleiðslu sem þjóðaröryggismál sé frumskylda að standa vörð um landbúnaðarland. Orkumálastjóri benti á þessa þróun í grein í vikubyrjun. Ég er löngu búinn að læra að það er vel þess virði að leggja við hlustir þegar hún segir eitthvað en í þessu tilviki er hún jafnframt í lykilstöðu þar sem málefni kalds og heits vatns, jarðefna og orku eru öll á borði stofnunarinnar. Grein orkumálastjóra ætti að vekja okkur sem störfum í stjórnmálum öll til umhugsunar. Þess vegna langar mig að spyrja ráðherra málaflokksins hvert álit hans er á þessari þróun og hvað ráðherra muni gera til að styrkja lagaramma og stjórnsýslu, til að tryggja hagsmuni almennings og afkomenda okkar af því að missa ekki auðlindir landsins og gott landbúnaðarland varanlega undir spákaupmennsku auðmanna.