154. löggjafarþing — 90. fundur,  21. mars 2024.

styrking lagaramma til varðveislu auðlinda.

[10:59]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Þetta er eitthvert met í að víkja sér undan því að svara spurningum. Hæstv. ráðherra finnst ég þurfa að vera skýrari í spurningum vegna þess að hann viti ekki hvaða greinar ég er að vísa til. Þetta er grein sem forstöðumaður Orkustofnunar birti á sunnudaginn og hefur náð að verða sú mest lesna á Vísi alla vikuna. Ég efast um að nokkurt mannsbarn sem hefur einhvern áhuga á auðlindum landsins og nýtingu þeirra hafi misst af þessari grein og þykir reyndar undarlegt að ráðherra kannist ekkert við hana, vegna þess að við sátum saman ársfund Samorku í gær þar sem var talað um þessa grein. Við vorum báðir í salnum. Þannig að kannski þarf ráðherra eitthvað að stanga úr eyrunum þegar hann hittir hagsmunaaðila og hlusta aðeins á það sem er verið að segja. Þetta er einföld spurning. Þetta er spurning um það hvort ráðherra ætli að skipa sér í lið með fjármálaöflunum sem vilja rýra möguleika komandi kynslóða á að þróa samfélagið á sínum forsendum eða hvort hann ætli að standa með almenningi, hvort hann ætli að standa með bændum, (Forseti hringir.) hvort hann ætli að standa með náttúrunni, hvort hann ætli að sýna langtímahugsun og þor eða vera bara dindill hagsmunaaflanna. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)