154. löggjafarþing — 90. fundur,  21. mars 2024.

styrking lagaramma til varðveislu auðlinda.

[11:01]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegur forseti. Ef spurningin er sú með hverju ég stend þá stend ég með með almenningi og náttúrunni. Hv. þingmaður telur sig kannski slá einhverjar keilur með því að vera hér með hróp og köll, slagorð sem eru fullkomlega innantóm. Við látum verkin tala, virðulegi forseti. Það er fylgst með því hvað hv. þingmaður gerir þegar kemur að málum sem varða nákvæmlega almenning og náttúruna. (Gripið fram í.) Hv. þingmaður hefur án þess að hika og þingflokkur Pírata gengið fram gegn almenningi í landinu, (Gripið fram í: Svaraðu spurningunni.) gegn almenningi …(Gripið fram í.) (AIJ: Þú átt ekki svör við því.)(Forseti hringir.) (Forseti hringir.)

(Forseti (BÁ): Ekki tveggja manna tal.)

Eitthvað fer þetta nú í taugarnar á hv. þingmanni. Nei, alls ekki, þess vegna er kallað fram í, af því að hv. þingmaður er svo ánægður með hvað ég er að segja. Hv. þingmaður og þingflokkur Pírata þarf að sýna það í verki að hann standi með almenningi (Forseti hringir.) í atkvæðagreiðslu og í umræðum í þinginu. Það hefur vantað mikið upp á það. Við skulum vona að við séum að sjá einhverjar breytingu hér á.