búvörulög.
Virðulegi forseti. Ég held að það hafi ekki farið fram hjá neinum að staða bænda er mjög erfið um þessar mundir og hefur lengi verið og reksturinn er þungur. Þetta er ekki síst alvarlegt í ljósi þess að eins og við þekkjum er rekstur búa nátengdur heimilum bænda og heimilisbókhaldinu, afkomu fólks, þannig að hækkun fjármagnskostnaðar og hækkun aðfangaverðs hefur gríðarleg áhrif á fólk sem hefur helgað líf sitt þessari grundvallaratvinnugrein. Stjórnmálin verða að bregðast við þessari stöðu og þar getur aukin hagræðing leikið lykilhlutverk. Við í Samfylkingunni styðjum það eindregið að hér verði komið á sambærilegum starfsskilyrðum í landbúnaði eins og tíðkast í nágrannalöndunum, að íslenskir framleiðendur hafi ekki lakara svigrúm til hagræðingar, ákveðins samstarfs, ákveðinnar verkaskiptingar en tíðkast m.a. á hinum Norðurlöndunum, en þá auðvitað innan þess ramma sem EES-rétturinn leyfir. Þetta var upphaflegt markmið þess frumvarps sem kom hingað inn á Alþingi frá hæstv. matvælaráðherra.
Það var hins vegar alveg ljóst frá upphafi að frumvarpstextinn í málinu eins og það kom upphaflega inn var ekki alveg í samræmi við yfirlýst markmið frumvarpsins samkvæmt greinargerð þess. Það var ljóst eiginlega frá upphafi að gera þyrfti talsverðar breytingar á þessu máli til að tryggja að markmið þess næðust og ég lýsti yfir stuðningi við þetta. En eftir 2. umræðu hér í gær fór ég engu að síður fram á það í ræðu um atkvæðagreiðsluna að málið yrði kallað aftur inn í nefnd og þá einkum vegna þess að þær breytingar sem voru gerðar í meðförum nefndarinnar eru svo viðurhlutamiklar að í raun erum við bara komin með nýtt frumvarp í hendurnar, nýtt frumvarp sem ætti með réttu að senda út til umsagnar. Þess vegna lét ég kalla málið aftur inn í nefnd. Eftir þetta barst atvinnuveganefnd bréf frá Páli Gunnari Pálssyni, forstjóra Samkeppniseftirlitsins. Þar koma fram atriði sem ég tel að kalli á frekari umræðu og frekari umfjöllun af hálfu nefndarinnar. Samkeppniseftirlitið bendir á að með þeim breytingum sem urðu á málinu í atvinnuveganefnd muni undanþágurnar frá samkeppnislögum taka til kjötafurðastöðva í öllum búgreinum án tillits til stöðu viðkomandi búgreinar. Með leyfi forseta:
„Samkvæmt frumvarpinu er því ekkert því til fyrirstöðu að allar afurðastöðvar, þ.e. í kindakjöti, nautakjöti, svínakjöti og kjúklingakjöti, hafi með sér samkeppnishamlandi samstarf eða sameinist. Verði hið breytta frumvarp að lögum geta þannig allar kjötafurðastöðvar landsins, ef þær svo kjósa, runnið saman, myndað eitt einokunarfyrirtæki og skaðað þannig með alvarlegum hætti hagsmuni bænda og neytenda.“
Forstjóri Samkeppniseftirlitsins bendir líka á að með þessu verði kjötafurðastöðvum veitt fullt sjálfdæmi um verðlagningu til bænda og smásala og neytenda og ekki sé gert ráð fyrir að bændur geti skapað aðhald með kjötafurðastöðvum í gegnum meirihlutaeignarhald, enda enginn áskilnaður gerður um eignarhald bænda eða stjórnun þeirra á afurðastöðvum líkt og kveðið var á um í upphaflegu frumvarpi.
En það sem Samkeppniseftirlitið bendir líka á, og ég held að við þurfum að staldra sérstaklega við, er að stofnunin telur allar líkur á því að breytingarnar leiði til þess að verð á kjötvörum til neytenda hækki, enda sé verið að veita afurðastöðvum sjálfdæmi um verðlagningu án takmarkana og að þessu leyti gangi frumvarpið í berhögg við forsendur nýgerðra kjarasamninga.
Samkeppniseftirlitið á ekki að stýra því sem gerist hér í þessum sal og það er ekki þannig að við eigum einhvern veginn bara að fara á taugum um leið og það berast harðorðar umsagnir hvort sem er frá stofnunum eða hagsmunaaðilum. En þegar það koma fram svona alvarlegar athugasemdir frá Samkeppniseftirlitinu, þeirri stofnun sem við höfum falið lykilhlutverk í að verja hagsmuni neytenda í landinu, verðum við samt að staldra við. Þá verður að rýna athugasemdirnar mjög vel og bregðast við þeim, hvort sem það felur þá í sér einhverjar meiri háttar breytingar á frumvarpinu eins og það lítur út núna eftir 2. umræðu eða hvort það felur bara í sér að veittar séu einhverjar skýringar, að það sé rökstutt betur hvers vegna sú leið er farin sem var valin.
Það liggur a.m.k. fyrir, virðulegi forseti, að breytingartillögurnar frá nefndinni eru svo viðurhlutamiklar að þær fela í raun í sér nýtt frumvarp. Þess vegna er það ákveðið prinsippatriði í mínum huga að nefndin kalli aftur eftir umsögnum hagsmunaaðila. Þá þarf líka að kalla eftir sjónarmiðum verkalýðshreyfingarinnar, sem var ekki gert á fyrri stigum þessa máls. Það var kallað eftir umsögn frá Samtökum atvinnulífsins en ekki frá t.d. Alþýðusambandi Íslands. Þar inni eru talsverðar áhyggjur af þessu máli. Það er m.a. af þessum ástæðum sem ég kallaði eftir því að málið færi aftur inn í nefnd. Þess vegna voru það mér nokkur vonbrigði að þegar nefndin kom saman í gærkvöldi til að fjalla aftur um málið var ósk minni um annan umsagnahring hafnað. Stjórnarmeirihlutinn er á móti því að málið sé tekið til frekari umfjöllunar í nefndinni og sent aftur út til umsagnar þannig að málið var bara tekið strax aftur úr nefndinni í gærkvöldi. Atvinnuveganefnd fundaði svo í morgun. Þá vakti ég aftur athygli á athugasemdum sem hafa borist og gerði lokatilraun til að reyna að tryggja frekara samráð, að málið yrði aftur sent út til umsagnar. En hér stöndum við í 3. umræðu og atkvæðagreiðsla er á dagskrá á eftir.
Ég hef talsverðar áhyggjur af þessu og vil bara skora eindregið á stjórnarmeirihlutann, sem fer með dagskrárvaldið í þessum sal, að fresta atkvæðagreiðslunni svo að það gefist frekara rými til umræðu og umfjöllunar um þetta mál. Nú hafa Neytendasamtökin, VR, Félag atvinnurekenda og Samtök verslunar og þjónustu líka sent nefndinni erindi. Það er líka upplifun þessara aðila að hér sé í raun komið fram nýtt frumvarp sem sé í grundvallaratriðum ólíkt því sem upphaflega var lagt fram. Í þeirri umsögn segir m.a., með leyfi forseta:
„Framlagning hins upphaflega frumvarps var réttlætt með erfiðri stöðu í sláturiðnaði, einkum í sauðfjár- og stórgripaslátrun. Nú er ekkert því til fyrirstöðu að afurðastöðvar í öllum búgreinum sameinist, þess vegna í eina, eða hafi með sér samkeppnishamlandi samstarf. Engar hömlur eru á að afurðastöðvar fyrirtækja sem hafa skilað ágætri afkomu, t.d. Matfugls, Ali, Stjörnugríss, Kaupfélags Skagfirðinga, Sláturfélags Suðurlands, ásamt öðrum fyrirtækjum sameinist í eitt einokunarfélag. […] Munurinn er sá að varnir neytenda verða engar.“
Þetta eru athugasemdir af því tagi að ég held að það færi best á því að bregðast mjög rækilega við þeim. Við skulum stíga eitt skref í einu hérna. Göngum ekki lengra í því að veita undanþágur frá samkeppnislögum en er raunverulega tilefni til. Þannig að ég biðla enn og aftur til þingmeirihlutans að Alþingi verði gefið ráðrúm til að rýna þetta mál betur, yfirfara og bregðast við þessum athugasemdum. Ég held að þetta sé líka bara lykilatriði í því að tryggja eins breiða sátt og hægt er til að liðka fyrir frekari hagræðingu í greininni, í landbúnaði, í þágu neytenda og bænda.