búvörulög.
Herra forseti. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem mál af þessum toga er til umræðu hér á þingi, ekki öll rata inn í þingsal, einhver þó. Alltaf hefur Viðreisn af prinsippástæðum verið á móti því að við beitum sömu tækjum og tólum til þess að reyna að laga vanda sem þessi sömu tæki og tól hafa skapað. Það er enginn sem velkist í vafa, vona ég, um þörfina á því að við leitum leiða til að bæta stöðu bænda. Ein sterkasta leiðin er klárlega að vinna bug á verðbólgu og ná þessum vöxtum niður. Til þess þarf skýra efnahagsstjórn, nokkuð sem hefur sárlega skort á hér undanfarið. Við höfum líka ítrekað rætt, auðvitað, aðrar leiðir til að bæta hag bænda og þá með það fyrir augum að líta til vina okkar í Evrópusambandinu, nokkuð sem myndi hafa áhrif á fjármagnskostnað og síðan getum við ýmislegt lært af landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins, hvernig þeir sinna bændum. En það verður ekki leyst hér.
Ég fór yfir það í ræðu minni í gær um þetta mál að við í Viðreisn styðjum það ekki. Það voru tveir flokkar sem lýstu því yfir eftir að breytingartillögur lágu fyrir, eftir að málið kom og nefndarálitið lá fyrir hjá meiri hlutanum, að þetta væri ekki mál sem þeir styddu. Það erum við og það eru Píratar. Ég gleðst yfir því að hv. þm. Jóhann Páll Jóhannsson sem studdi málið upphaflega sé kominn á aðra skoðun. Ég gleðst yfir því að það skuli fjölga í hópi þeirra sem telja þetta ekki leiðina til að bæta hag bænda. Við þurfum nefnilega að gera það með aðgerðum sem styðja stöðu þeirra, ekki milliliða, og við þurfum að vinna út frá því að hagsmunir bænda og hagsmunir neytenda fari saman. Það er staðan. Öðruvísi leysum við þetta ekki.
Við í Viðreisn höfum verið mjög skýr með þetta mál að það að veita undanþágu frá 10. og 12. gr. samkeppnislaga varðandi bann við ólögmætu samráði leysi það ekki. Þar er ekki gerð nein krafa um greiningarvinnu, ekki gerð krafa um hvernig vandi bænda verður leystur með þessu. Það er ekki gerð krafa um að það sé greint hvaða áhrif þetta hafi á stöðu neytenda eða annað slíkt. Væri farin sú leið, sem fær er án þessarar lagabreytingar sem lögð er til, að beita 16. gr. samkeppnislaga, þá þyrfti að fara í þessa vinnu. Það þyrfti að skoða áhrifin, ekki bara á bændur sjálfa heldur á neytendur. Það er enn þá tiltölulega óljóst af hverju meiri hlutinn og þeir sem þrýsta á að þetta mál fari í gegn eru ekki tilbúnir í þá vinnu. Vissulega er það svo að árið 2020 var þessu ákvæði samkeppnislaga breytt á þann hátt að það kallar á ákveðið sjálfsmat í staðinn fyrir það að Samkeppniseftirlitið veitti þessa undanþágu að gefinni ákveðinni undangenginni röksemdafærslu, en sjálfsmatið er engu að síður tæki til þess nákvæmlega að fara ofan í kjölinn á þessum málum, til að greina vandann, greina það hvort þetta er leiðin til að leysa málið.
Það er erfitt að standa hér og lýsa yfir andstöðu við mál sem er lagt fram undir því fororði að bæta stöðu bænda sem, eins og ég ítreka, er erfið. En það verður að gera þá kröfu, eins og ég kom inn á í gær, að það sé hægt að rökstyðja hvaða áhrif þetta hefur ekki bara á bændur heldur á neytendur og samkeppnisumhverfið almennt. Fyrir flokk eins og Viðreisn sem trúir því að samkeppni geti leitt til hins góða fyrir allar atvinnugreinar og bæti hag neytenda líka þá er þetta erfitt mál. Vissulega eru ekki allar atvinnugreinar á sama stað. Það eru mismunandi skilyrði, mismunandi aðstæður, en til þess er jú þessi margnefnda 15. gr. samkeppnislaga, undanþágugreinin, og það eru aðrar leiðir færar. Ég held svei mér þá að beingreiðslur til bænda væru heppilegri og myndu ekki vera líklegar til að hafa jafn skaðleg áhrif á samkeppnisumhverfið og þetta frumvarp getur haft ef fer á versta veg. Og ég ætla að vera með fyrirvarann ef þetta fer á versta veg, vegna þess að það vantar greininguna.
Þetta er staðan og þetta hefur verið umræðan í nefndinni þannig að ég veit ekki hvort ástæða er til að hafa miklar væntingar til einhverra breytinga þrátt fyrir þessa umræðu hér. En hún er mikilvæg og hún kallar þá a.m.k. vonandi á það að fleiri skref verði stigin í því að greina þessa stöðu, greina þennan markað og greina hvað það raunverulega er sem við þurfum og getum gert til að búa svo um hnútana að landbúnaðurinn okkar fái að vaxa og dafna í sátt og samlyndi við aðra anga samfélagsins. Það hlýtur að vera lykilmarkmið. Þannig á þetta að vera. Hagsmunir bænda og neytenda eru samofnir. Við getum ekki notað aðferðafræði sem slítur þar á milli. Það getur ekki verið leiðin og það er einfaldlega ákveðin uppgjöf að ganga út frá því.
Ég ætla að lokum að taka undir það sem hefur komið fram hér hjá hv. þm. Jóhanni Páli og hv. þm. Gísla Rafni, að þegar um er að ræða mál sem er þetta yfirgripsmikið og getur haft jafn víðtæk áhrif á marga þá hefði verið betri bragur á því að kalla eftir fleiri umsögnum og fá fleiri gesti inn til nefndarinnar.
Svo ætla ég að enda hér með því að segja, eins og ég segi svo oft, að það er ástæða fyrir okkur sem vinnum hér við lagasetningu að huga að því hvernig við bregðumst við í nefndarvinnunni þegar mjög umsvifamiklar breytingartillögur koma fram á síðustu stundu. Það er eiginlega ótækt að rétt áður en mál eru tekin til endanlegrar afgreiðslu vakni lykilaðilar, hagsmunaaðilar, hagaðilar og þeir sem lögin hafa mikil áhrif á, upp við vondan draum hér og þar úti í samfélaginu af því að það er verið að greiða atkvæði hér í þingsal um einhvern veginn allt annað mál en þeir voru með til umsagnar og fjölluðu um og töldu sig hafa í höndunum einhverjum vikum, mögulega mánuðum áður. — En aftur ítreka ég margyfirlýsta andstöðu Viðreisnar við þetta mál.
(Forseti (BÁ): Forseti vill minna hv. þingmenn á að nefna þingmenn annaðhvort með fullu nafni eða þá að vísa til kjördæmis og kjördæmissætis en ekki láta nægja eiginnafn og millinafn.)