154. löggjafarþing — 90. fundur,  21. mars 2024.

búvörulög.

505. mál
[11:53]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég ætla að taka undir með hv. þingmanni að það væri jákvætt fá samvinnuhugsjónina meira inn í þetta og siðferðileg gildi. En ég verð bara að segja það eftir að hafa farið yfir þetta frumvarp að þarna er verið að opna jafnvel að greiða leið fyrir þekkta fjárplógsmenn, eins og stofnandi Framsóknarflokksins hefði eflaust kallað þá, sem eru hér með leigufélög og eru í þessum matarbransa. Ég bara held og er viss um það að þetta er ekki gott fyrir bændur. Reynslan segir það og ég mun eflaust fara yfir það hér seinna í ræðu minni. Ég vona svo sannarlega að hv. þingmaður og atvinnuveganefnd, meiri hlutinn, fresti þessu máli, þingheimur allur, og fari betur yfir og nái sátt í anda samvinnuhugsjónarinnar.