búvörulög.
Frú forseti. Eins og við vitum þá hefur rekstur kjötafurðastöðva í landbúnaði verið erfiður þegar kemur að slátrun og vinnslu sauðfjárafurða og kjötvinnslu stórgripa. Ég held að það séu umtalsverð tækifæri fólgin í því, bæði fyrir bændur og fyrir neytendur, að liðka fyrir ákveðinni endurskipulagningu og hagræðingu þarna. Þetta var upphaflegt markmið, yfirlýst markmið frumvarpsins sem kom frá hæstv. matvælaráðherra, og við í Samfylkingunni styðjum þessi markmið. Við viljum mjög gjarnan taka þátt í því að samþykkja lagabreytingar sem koma slíkum breytingum á. En eins og við vitum og eins og hér hefur verið farið yfir þá fól frumvarpstextinn upphaflega í sér eitthvað allt annað og hefði ekki náð utan um þær greinar landbúnaðar sem standa veikast. (Forseti hringir.) Kann hv. þingmaður og formaður atvinnuveganefndar einhverjar skýringar á því að ekki var búið betur að málinu í upphafi, að það kom fram í þessari mynd?