búvörulög.
Virðulegur forseti. Það er auðvitað mjög alvarlegt þegar hér er flutt frumvarp og fer fram umræða í þingsal um eitthvert mál þar sem eru ákveðin markmið til staðar, rætt um þessi markmið og leiðirnar að þeim, en svo kemur í ljós þegar þingið fer að rýna betur málið að frumvarpstextinn sjálfur felur í raun í sér eitthvað allt annað. Mér virðist nú, einmitt eftir að hafa hlustað á hv. formann atvinnuveganefndar, að málið sem kom frá ráðuneytinu hafi verið með slíkum göllum og kallað á svo viðurhlutamiklar breytingar af hálfu atvinnuveganefndar að í raun hefði verið miklu eðlilegra að nefndin hefði frekar, eins og við gerðum hér fyrir jól þegar lagt var fram frumvarp um breytingar á lögum er varða orku og forgangsrétt almennra neytenda og almennra notenda, (Forseti hringir.) átt að smíða nýtt frumvarp, eins og í raun er gert í þessu nefndaráliti, sem hefði þá farið í eðlilegt umsagnarferli. (Forseti hringir.) Þá hefðu umsagnaraðilar fengið umsagnarbeiðni, fengið óskir um að bregðast við raunverulega því máli sem stefnir í að óbreyttu að verði afgreitt sem lög á Alþingi í dag (Forseti hringir.) án þess að þetta eðlilega og lögbundna samráðsferli hafi raunverulega á sér stað.
(Forseti (JSkúl): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða ræðutímann sem er ein mínúta.)