154. löggjafarþing — 90. fundur,  21. mars 2024.

búvörulög.

505. mál
[12:10]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka spurninguna og sömuleiðis leiðbeininguna sem var bara virkilega góð og gott innlegg í umræðuna. Þetta er alveg hárrétt. En það sem ég vil bara vekja athygli á er að við erum búin að taka til umræðu undanfarin fimm ár mál af þessum toga. Við höfum tekið umræðuna trekk í trekk um þessa hluti við sömu hagsmunaaðila. Margir af þeim hagsmunaaðilum sem hafa verið nefndir á nafn í dag sendu inn umsögn, einhverjir af þeim komu fyrir nefndina o.s.frv. Ég tel því að þó að það hafi verið góður vilji hjá aðilum í öll skiptin að eiga góð samskipti, sem þau vissulega voru, þá breyttu menn ekkert um skoðun á þeirri vegferð, hvort sem það er vegna hugaráhrifa formanns atvinnuveganefndar eða ágætra gesta sem komu fyrir nefndina. En það er einu sinni þannig (Forseti hringir.) að stundum er fólk ósammála og það verður það bara í grunninn. Við áttum okkur líka á því í dag og í þeirri umræðu (Forseti hringir.) sem átt hefur sér stað hvar við setjum punktinn og það er það sem við erum að velta fyrir okkur hér í dag í þessum samræðum.