búvörulög.
Forseti. Aukin verkefni fyrir sömu fjármuni kalla alltaf á einhvers konar hliðrun annarra verkefna ef það á að sinna þeim sem skyldi. Það ætti svo sem að vera mjög einfalt að spyrja: Hvert er áætlað umfang? Er það hálfur starfsmaður eða eitthvað svoleiðis sem þarf að sinna þessu að meðaltali eða hvað er það? Er svigrúm til þess? Ársskýrslur Samkeppniseftirlitsins á undanförnum árum hafa ekkert bent til þess að það sé svigrúm í vinnu eftirlitsins til að fylgjast með mun fleiri fákeppnismörkuðum. Ég held að við þurfum aðeins að átta okkur á því að eins lítið land og Ísland er þá erum við bara að grunni til með fákeppnisumhverfi sem þarf þá að passa betur upp á einmitt í samkeppnislögum. Þar eru undanþágur frá samkeppnislögum eða aukin skilyrði og ýmislegt svoleiðis flóknara og hjálpar í rauninni til við fákeppni og einokunina. Ég held að við þurfum að taka einhverjar aðrar lausnir hérna ef við til að byrja með viðurkennum það bara að almennt séð erum við í fákeppnisumhverfi og þær leiðir sem við höfum hingað til leitað til að tryggja hagkvæmni á einhvern hátt, undir alla vega þeim formerkjum, hafa einfaldlega ekki virkað. Staða bænda í dag er afleiðing þess kerfis sem nú er við lýði. Það er ekki hægt að afneita því í rauninni. Við erum með ákveðið kerfi núna. Það er ekki að virka. Að reyna að viðhalda því á einhvern hátt er kannski ekki besta leiðin í stöðunni.