búvörulög.
Frú forseti. Nú er það þannig að menn geta ekki gefið sér það að fákeppni leiði í sjálfu sér til t.d. hærra verðs til neytenda. Það er ekki alltaf þannig. Það er ekki þannig. Það eru mýmörg þekkt dæmi um það í sögunni að það hafi akkúrat leitt til verðstríðs og þar með lækkandi verðs til neytenda. En látum það liggja á milli hluta. Ég er þeirrar skoðunar að við þurfum að búa íslenskum landbúnaði þau starfsskilyrði að íslenskir bændur geti staðið hnarreistir sem sjálfstæðir atvinnurekendur, sem þeir eru. Ég hef alltaf litið á íslenska bændur sem sjálfstæða atvinnurekendur og það á að nálgast viðfangsefnið þannig. En við eigum líka ekki bara að búa skilyrðin út frá því hvað bændum kemur vel heldur reyna líka að tryggja hag neytenda. Í stóra samhenginu er það auðvitað verkefni okkar hér og skyldur að tryggja fæðuöryggi þjóðarinnar í víðtækum skilningi.
Ég er sannfærður um að þetta frumvarp, með breytingum meiri hluti atvinnuveganefndar, styrki okkur í þessari viðleitni að tryggja hag bænda, tryggja hag neytenda, og stuðli til lengri tíma að því að fæðuöryggi verði tryggara. Ég veit að einhverjum kann að þykja þetta langsótt en þannig nálgast ég málið. Ég vara bara við að að óbreyttum lögum siglir hér í óefni.