búvörulög.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir málefnalega og ágæta ræðu. Ég deili þeirri skoðun með hv. þingmanni að hagræðing í landbúnaði, ekki síst þegar kemur að sauðfjár- og stórgriparækt, eigi að geta leikið lykilhlutverk í því að bæta kjör bæði bænda og neytenda, og þá er ég m.a. að tala um aukna verkaskiptingu og samvinnu.
Hv. þingmaður nefndi hér áðan þau skilyrði sem eru sett, skilyrði sem þau framleiðendafélög sem nýta sér þessa tiltekna heimild, þessa undanþáguheimild frá samkeppnislögum, munu þurfa að uppfylla og fjallaði um að þetta væru skilyrði í þágu bæði hagsmuna bænda og neytenda. En það sem truflar mig kannski aðeins er að ég sé ósköp lítið í þessum skilyrðum sem er endilega til þess fallið að bæta hag neytenda. Mig langar að varpa fram þeirri spurningu til hv. þingmanns: Hefur hann engar áhyggjur af því að hér sé verið að lögfesta mjög víðtækar undanþáguheimildir sem geti einmitt bitnað á neytendum ef það verða ekki einhverjir frekari varnaglar settir inn í lögin? Í dag hefur verið talað talsvert um Noreg. Það hefur verið bent á að þar séu sumpart víðtækari undanþágur en hér en þar er þó ákveðin verðstýring. Ég veit að hv. þingmaður er ekki aðdáandi verðstýringar en hefur hann engar áhyggjur af því varðandi þessi skilyrði, sem eru sannarlega til bóta og voru kannski ein af meginástæðum þess að ég var samþykkur nefndarálitinu, að þar vanti einmitt varnagla í þágu neytenda?