búvörulög.
Frú forseti. Ég hygg að það sé alveg hægt að velta því fyrir sér hvort í framtíðinni þurfi að huga að því að setja einhver slík skilyrði. Ég velti því mjög fyrir mér, ég fann ekki þá lausn og enginn sem ég hef rætt við hefur bent mér á hvernig það er. Ég held að það skipti öllu máli þegar það kemur t.d. — ja, ekki öllu máli en það skiptir töluvert miklu máli þetta ákvæði sem tryggir hag kjötvinnslu sjálfstæðra kjötvinnslustöðva að geta átt viðskipti við afurðastöðvarnar á sama grunni og afurðastöðvarnar eru að eiga innbyrðis, það er auðvitað það sem skiptir meginmáli. Auðvitað skiptir síðan endaaðilinn, sem er verslunin, kannski mestu máli þegar kemur að hag neytenda. Og kannski þurfum við einmitt að fara að velta því fyrir okkur með hvaða hætti við getum aukið samkeppni á matvörumarkaði og byggt undir alvörusamkeppni um allt land. Ég hygg að þar muni hagsmunum neytenda verða best borgið.