154. löggjafarþing — 90. fundur,  21. mars 2024.

búvörulög.

505. mál
[13:00]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég heyrði hluta af henni og þar talar hv. þingmaður um loftslagsmálin sem eru mjög mikilvæg. Ég vildi kannski ítreka spurningu mína og ná því betur fram hvort hv. þingmaður telji það ekki til bóta ef við byggjum undir íslenska matvælaframleiðslu, sem er landbúnaðurinn í þeirri mynd sem núna er. Ég veit að við þróumst áfram á þann veg að við förum kannski að rækta kjöt eða annað slíkt, hvort það verður akkúrat núna næstu misseri — og ég heyrði að hv. þingmaður sagði að það hefði verið nauðsynlegt að breyta þessu í mjólkinni á sínum tíma en væri kannski ekki nauðsynlegt núna. Það eru akkúrat tíu ár síðan þetta breyttist í mjólkinni. Erum við þá ekki bara að gefa akkúrat kjötframleiðslunni rými? Hvað varðar loftslagsmálin erum við náttúrlega að flytja inn kjöt. Það er loftslagsmál að yrkja jörðina, að rækta hana. Við erum með mikið ræktarland, með nægilega mikið ræktarland enn þá til að halda uppi þeim landbúnaði sem er núna í dag. Telur hv. þingmaður ekki að þetta væri til bóta í loftslagsmarkmiðum, sem skref í þá átt? Eins talar hv. þingmaður líka um mjólkina. Eigum við ekki að gefa þessu rými hér eins og við erum að gera núna?