búvörulög.
Forseti. Ég var að tala um loftslagsmálin í mun stærra samhengi þess fæðuöryggisvandamáls sem við glímum við, sem er fæðuöryggi byggt á innflutningi á eldsneyti. Við þurfum í rauninni að losa okkur við þann innflutning og vera óháð innflutningi á kolefnaeldsneyti til þess að tryggja fæðuöryggi. Meðan við erum háð því erum við ekki með tryggt fæðuöryggi.
Hvort þessar breytingar sem hér er verið að leggja fram hafi einhver loftslagsáhrif, ég hef ekki hugmynd um það. Það er ómögulegt að spá fyrir um hvernig það fer á einn veg eða annan. Svarið við því er því bæði já og nei, það gæti farið á einn veg eða annan. Það er ekkert markmið sem ég sé í því, yfirlýst markmið, að þessar breytingar muni ná loftslagsáhrifum árangri og útskýrt af hverju. Ég skil ekki hvernig það kemur inn í það.
En eins og ég segi, við þurfum að losa okkur við innflutning á eldsneyti. Það er risaloftslagsmál. Hvort þetta frumvarp eða breytingar meiri hlutans hafi einhver áhrif á loftslagsvandann, ég ætla að leyfa mér að efast um það.