154. löggjafarþing — 90. fundur,  21. mars 2024.

búvörulög.

505. mál
[13:15]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil nú byrja á því að þakka fyrir ágæta ræðu. Ég er sammála ýmsu sem þar kom fram en þó vil ég vekja athygli hv. þingmanns á því að við erum búin að fara þessa leið. Við erum búin að fara í fækkun sláturleyfishafa, fækkun sláturhúsa. Og hvað hefur það leitt af sér? Hefur það bætt mjög kjörin hjá bændum? Hefur það bætt mjög kjörin hjá neytendum? Nei, ég held að við séum sammála um það að svo er ekki. En þá er spurningin sem ég vil bera upp: Finnst hv. þingmanni það skynsamlegt að leysa úr fákeppni, sem hann segir að sé á matvælamarkaði, með því að koma á einokun á úrvinnslu og þessari starfsemi? Ég held að það geti verið mjög vandasöm leið þó svo að helsti frelsispostuli Sjálfstæðisflokksins hafi komið því áleiðis hér í andsvörum að til að lækna slæm áhrif á matvörumarkað, fákeppnina þar, þá þyrfti að koma á einokun. Það átti sem sagt að lækna fákeppni með einokun. Er ekki rétt að staldra aðeins við? Ég segi það nú við hv. þingmann, herra forseti: Er ekki rétt að fara að láta grunngildi Framsóknarflokksins leiða umræðuna og verkin á þingi í stað þess að fara í einokun til að leysa úr fákeppni? Þetta finnst mér ekki skynsamlegt. En að öðru leyti þá þakka ég fyrir góða ræðu.