búvörulög.
Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að fara að svara fyrir samþjöppun í sjávarútvegi eða annað slíkt eins og minnst var á en ég vil ítreka að það er ekki verið að koma í veg fyrir samkeppni. Að sumu leyti er verið að styrkja stöðu bænda með þessu, ef ég má lesa upp úr frumvarpinu, með leyfi forseta:
„…tryggja öllum framleiðendum rétt til að eiga einungis viðskipti við framleiðendafélag um afmarkaða þætti, svo sem slátrun og hlutun. Samkeppniseftirlitið fer með eftirlit með framkvæmd 2. mgr.“
Þetta er ekki svona í dag. Þetta er framför og tryggir t.d. meiri samkeppni meðal bænda við sláturleyfishafana. Það kom svo sem ekkert annað fram en já, ég get alveg vitnað um það að hagur bænda hefur lagast. Eins og fram hefur komið hefur verð á lambakjöti hækkað um 62% á síðustu tveimur árum. Það er reyndar ofboðslega lítið, þó að 62% sé mikið, af því að 62% á mjög lítið getur aldrei orðið stórt. En svona er þetta.