staðfesting ríkisreiknings 2022.
Forseti. Framsögumaður málsins minnist hér á þennan ágreining sem er í rauninni þarna af hendi fjársýslunnar og svo sem fjármálaráðuneytisins líka gagnvart endurskoðunarskýrslu ríkisendurskoðanda og ber fyrir sig að ríkisreikningurinn hafi verið undirritaður án fyrirvara, án nokkurra — alls ekki án athugasemda. Ég velti fyrir mér, eftir að hafa unnið þetta mál inni í fjárlaganefnd, hvort það sé í rauninni hægt að segja sem svo að fjárlaganefnd hafi náð einhvers konar niðurstöðu um það sem gerður er ágreiningur um á milli þessara aðila eða hvort hann sé bara látinn liggja á milli hluta og ekkert afgreiddur af eða á.