154. löggjafarþing — 90. fundur,  21. mars 2024.

staðfesting ríkisreiknings 2022.

399. mál
[14:05]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Stefán Vagn Stefánsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni kærlega fyrir þessa spurningu. Hún er góð. Hvort menn hafi náð einhvers konar niðurstöðu eða skilningi á þeim ágreiningi sem þarna er, þá vil ég bara benda á það sem kemur fram í nefndarálitinu þar sem meiri hlutinn endar í raun og veru á því að segja að í ljósi þess að ályktun ríkisvaldsins sé án fyrirvara leggi hún til að frumvarpið sé samþykkt. Í málsgreininni hér fyrir ofan erum við meiri hlutinn einmitt að benda á þessi ágreiningsmál og segjum hér að það sé ekki hægt að búa við núverandi stöðu mála lengur. Það er svo sem ekkert nýtt undir sólinni í því að við séum með þennan ágreining í fjárlaganefnd um þennan ríkisreikning og framsetningu hans. Það sem hefur hins vegar gerst núna og ég bind bara ágætar vonir við og væntingar, við verðum að vera bjartsýn, er að það samtal sem nú er hafið milli þessara aðila muni verða til þess að sá ágreiningur sem birtist hér varðandi framsetningu ríkisreiknings fyrir árið 2023 verði miklu minni og með allt öðrum hætti.