búvörulög.
Virðulegur forseti. Hér er ég að gefa ríkisstjórninni tækifæri á að endurskoða þetta mál eftir viðamiklar breytingar sem meiri hluti atvinnuveganefndar gerir á frumvarpinu, svo viðamiklar, virðulegi forseti, að ASÍ sendi okkur póst sem segir, með leyfi forseta:
„Eftir breytingar atvinnuveganefndar er frumvarpið bein aðför að kjörum fólksins í landinu sem gert verður að sæta því að hagsmunaaðilar hafi með sér samráð um verkaskiptingu, verðlagningu og fleira. Vart þarf að taka fram að slík framganga telst ólögmæt og refsiverð í öðrum atvinnugreinum. Til að tryggja lögmæti samráðs og hringamyndunar eru felld niður ákvæði um eftirlit Samkeppniseftirlitsins og eftir atvikum bann við óheimilum samningum eða ákvörðunum framleiðenda, sem voru í upphaflegu frumvarpi ráðherra.“
Hér er því, eins og ASÍ bendir á, um það eðlismiklar breytingar að ræða að rétt væri að frumvarpið færi aftur í gegnum þrjár umræður. Því ætti með réttu að vísa þessu máli aftur til ríkisstjórnarinnar til þess að það geti farið í almennilegt samráð því að ekki var haft samráð við ASÍ við undirbúning og gerð þessa frumvarps og er miður að sjá að meiri hlutinn hafi ekki þor í sér til þess að gera það.