breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga. Meginefni frumvarpsins lýtur að breytingum á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, en einnig lögum um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, og lögum um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 55/2006, auk breytinga á öðrum lögum sem þó eru að mestu leyti afleiddar af þeim breytingum sem lagðar eru til á fyrrnefndum lögum.
Frumvarpið er liður í heildarendurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga sem staðið hefur yfir með hléum í næstum aldarfjórðung og margt fólk hefur komið að og ég vil fá að þakka hér strax í upphafi ræðu minnar. Hefur frumvarpið verið unnið í samvinnu við helstu hagsmunasamtök þeirra sem ekki hafa fulla getu til virkni á vinnumarkaði, við aðila vinnumarkaðarins, helstu stofnanir og opinbera aðila og einstaklinga sem starfa í þessum málaflokki. Þá er frumvarpið að talsverðu leyti byggt á niðurstöðum samráðshóps um breytt framfærslukerfi almannatrygginga sem skilaði skýrslu í maí 2019 en í samráðshópnum áttu sæti fulltrúar stjórnmálaflokka, helstu hagsmunasamtaka og samtaka aðila vinnumarkaðarins.
Frumvarpið er eitt stærsta ef ekki stærsta velferðarmálið sem núverandi ríkisstjórn kveður á um í stjórnarsáttmála sínum. Þetta er og það mál sem ég hef sjálfur lagt mesta áherslu á að vinna að á þessu kjörtímabili og ég fagna því að þeim áfanga sé náð að koma málinu til umfjöllunar hér á Alþingi.
Í stjórnarsáttmálanum kemur m.a. fram að málefni örorkulífeyrisþega verði tekin til endurskoðunar á kjörtímabilinu með það að markmiði að bæta lífskjör og lífsgæði einstaklinga með mismikla starfsgetu. Þá segir að sérstaklega verði horft til þess að bæta afkomu og möguleika einstaklinga til virkni, menntunar og atvinnuþátttöku á eigin forsendum. Lögð verði áhersla á að afkoma örorkulífeyrisþega verði áfram bætt með það að markmiði að bæta sérstaklega kjör þeirra sem lakast standa en ég legg mikla áherslu á að kjör þeirra sem hafa lágar eða jafnvel engar tekjur aðrar en bætur almannatrygginga verði bætt.
Enn fremur er í stjórnarsáttmálanum kveðið á um að örorkulífeyriskerfið verði einfaldað og dregið úr tekjutengingum og kerfið gert skilvirkara, gagnsærra og réttlátara, sem ég tel tvímælalaust að náist fram með frumvarpinu. Einnig segir í stjórnarsáttmálanum að þátttaka og endurkoma einstaklinga með skerta starfsgetu á vinnumarkað verði auðvelduð þannig að fólk hafi fjárhagslegan hag af atvinnuþátttöku og fái tækifæri á vinnumarkaði án þess að afkomuöryggi þess sé ógnað. Þjónusta verði tryggð auk stuðnings til þátttöku og endurhæfingar og einstaklingum sem missa starfsgetuna verði í auknum mæli tryggð þjónusta og stuðningur strax á fyrstu stigum með tilliti til líkamlegra, sálfræðilegra og félagslegra þátta sem hafa áhrif á starfsgetu.
Virðulegi forseti. Í frumvarpi því sem ég mæli nú fyrir endurspeglast framangreind atriði stjórnarsáttmálans og með framlagningu þess sér nú loks fyrir endann á þeirri vinnu sem staðið hefur yfir undanfarin ár og þá kannski sérstaklega undanfarin tvö ár.
Ég mun nú víkja nánar að þeim breytingum sem lagðar eru til í frumvarpinu. Í fyrsta lagi er í frumvarpinu lagt til að tekið verði upp samþætt sérfræðimat í staðinn fyrir læknisfræðilegt örorkumat. Í núverandi kerfi metur Tryggingastofnun örorku þeirra sem sækja um örorkubætur til stofnunarinnar í ljósi líkamlegrar og andlegrar færniskerðingar þeirra samkvæmt staðli frá árinu 1999 sem er byggður á læknisfræðilega viðurkenndum sjúkdómum eða fötlun. Niðurstaða matsins byggir m.a. á læknisvottorði og læknisfræðilegri skoðun sem tekur mið af örorkustaðlinum. Nýja samþætta sérfræðimatið byggir á allt annarri nálgun. Það verður heildrænt mat á getu viðkomandi til virkni á vinnumarkaði og verður litið til þróunar erlendis við gerð þess. Samþætta sérfræðimatið mun byggja á hugmyndafræði ICF, sem er alþjóðlegt flokkunarkerfi um færni, fötlun og heilsu sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin gefur út og viðheldur.
Samkvæmt flokkunarkerfinu er færni afleiðing af samspili heilsufars og aðstæðna einstaklingsins. Þegar geta til virkni á vinnumarkaði verður metin verður þar af leiðandi, auk heilsufarsþátta, litið til færni til athafna og þátttöku, umhverfisþátta og að lokum einstaklingsbundinna þátta. Með umhverfisþáttum er t.d. átt við hjálpartæki, stuðning, tengsl, viðhorf og möguleika á vinnumarkaði. Megináhersla matsins er þannig á færni viðkomandi í samspili við umhverfi og aðstæður fremur en á greiningar og sjúkdóma. Þverfaglegur hópur sérfræðinga mun koma að matinu, svo sem læknar, sjúkraþjálfarar og iðjuþjálfar, félagsráðgjafar, sálfræðingar og þroskaþjálfar. Hér er því um að ræða fyrirkomulag sem er mjög ólíkt því sem við búum við í dag þar sem örorka er fyrst og fremst metin út frá læknisfræðilegum gögnum. Samþætt sérfræðimat mun byggja á gögnum um heilsufarsþætti og endurhæfingu einstaklingsins, eftir atvikum viðtali hans við viðeigandi sérfræðinga og mati einstaklingsins sjálfs og upplifun hans á aðstæðum sínum, þar á meðal heilsu sinni og væntingum.
Í niðurstöðum samþætts sérfræðimats á að koma fram hver geta viðkomandi einstaklings til virkni á vinnumarkaði sé í prósentum talið. Matið verður forsenda fyrir greiðslu örorkulífeyris og hlutaörorkulífeyris samkvæmt hinu nýja greiðslukerfi sem ég mun gera nánari grein fyrir hér á eftir. Þó er gert ráð fyrir að heimilt verði að víkja frá skilyrðinu um samþætt sérfræðimat sé slíkt mat talið bersýnilega óþarft, t.d. ef um er að ræða einstakling með svo verulega skerta getu til virkni á vinnumarkaði að það sé augljóst að getan sé minni en 25%.
Það er mikilvægt að vanda vel til verka við gerð hins nýja mats og í janúar síðastliðnum hóf vinnuhópur hjá Tryggingastofnun undirbúning að mótun samþætts sérfræðimats. Á næstu dögum mun ég skipa sérstakan starfshóp sem falið verður að útfæra matið og undirbúa frekar. Starfshópurinn verði skipaður breiðum hópi fagaðila sem búa yfir þeirri sérþekkingu sem taka þarf mið af við mótun á nýju heildstæðu matskerfi auk þekkingar á ICF-flokkunarkerfinu. Jafnframt verður aðkoma notenda, þ.e. fulltrúa hagsmunasamtaka fatlaðs fólks, lífeyrissjóða, aðila vinnumarkaðarins og stofnana hins opinbera. Eftir að þróun matsins verður lokið verða eiginleikar þess og áhrif prófuð áður en það verður tekið í notkun.
Virðulegi forseti. Í frumvarpi því sem ég mæli nú fyrir er lagt til að tekið verði upp nýtt greiðslukerfi vegna örorku og endurhæfingar. Verði frumvarpið samþykkt munu breytingarnar leiða til einföldunar greiðslukerfisins, draga úr áhrifum annarra tekna á greiðslur almannatrygginga og ekki síst bæta kjör örorkulífeyrisþega sem og þeirra sem þurfa stuðning meðan á meðferð eða endurhæfingu stendur. Allt er þetta eitthvað sem lengi hefur verið kallað eftir og er nú loks fram komið.
Ég mun nú víkja nánar að því hvað felst í nýju greiðslukerfi og nýjum og breyttum greiðsluflokkum. Lagt er til að sérstök uppbót á lífeyri vegna framfærslu samkvæmt lögum um félagslega aðstoð falli brott, verði frumvarpið að lögum, og sameinist greiðsluflokkunum örorkulífeyri og tekjutryggingu samkvæmt lögum um almannatryggingar þannig að úr verði einn greiðsluflokkur almannatrygginga, örorkulífeyrir. Er gert ráð fyrir að hinn breytti örorkulífeyrir verði greiddur þegar samþætt sérfræðimat liggur fyrir og niðurstaðan sé að einstaklingur hafi enga eða mjög litla getu til virkni á vinnumarkaði eða 0–25%. Lagt er til að fjárhæð örorkulífeyris verði 380.000 kr. á mánuði og að örorkulífeyrisþegar hafi mánaðarlegt 100.000 kr. almennt frítekjumark vegna annarra tekna óháð tegund þeirra. Aftur á móti er ekki lagt til sérstakt frítekjumark vegna atvinnutekna.
Í frumvarpinu er einnig lagður til nýr greiðsluflokkur, hlutaörorkulífeyrir, sem ætlaður er einstaklingum sem eru metnir með takmarkaða getu til virkni á vinnumarkaði sem nemur 26–50%. Samkvæmt gildandi lögum geta einstaklingar sem metnir hafa verið til a.m.k. 50% örorku fengið örorkustyrk. Hlutaörorkulífeyrir verður ólíkur örorkustyrk þar sem bæði matið sem greiðslurnar byggjast á er ólíkt gildandi örorkumati og einnig verður fjárhæð hlutaörorkulífeyris mun hærri en fjárhæð örorkustyrks. Með þessum breytingum er stuðningur aukinn við þau sem búa við skerta færni til atvinnuþátttöku en sem þó eru talin geta tekið þátt á vinnumarkaði að einhverju leyti og með því bætt framfærslu sína. Tilgangur hlutaörorkulífeyris er þannig að bæta hlutaðeigandi einstaklingum það upp að þeir geta ekki aflað sér tekna með fullri þátttöku á vinnumarkaði og þá með fjárhæð sem nemur 75% af örorkulífeyri eða 285.000 kr. á mánuði, en um leið er hvatt til atvinnuþátttöku með háu frítekjumarki vegna atvinnutekna sem nemur 250.000 kr. á mánuði. Auk sérstaka frítekjumarksins vegna atvinnutekna er lagt til almennt frítekjumark sem verði 100.000 kr. á mánuði. Þannig geti hlutaörorkulífeyrisþegar í reynd haft samtals 350.000 kr. í atvinnutekjur á mánuði án þess að það leiði til lækkunar á fjárhæð hlutaörorkulífeyris og því geta þau séð hag sinn í því að taka þátt á vinnumarkaði.
Bind ég miklar vonir við að svo hátt frítekjumark hvetji breiðari hóp fólks sem hefur 26–50% getu til virkni á vinnumarkaði, eða getu til að sinna hlutastarfi með öðrum orðum, til að taka þátt á vinnumarkaði sér til hagsbóta og að þessar breytingar veiti fólki tækifæri til að yfirvinna þær hindranir sem það mætir þegar kemur að atvinnuþátttöku. Með þessu móti setjum við inn rétta fjárhagslega hvata til atvinnuþátttöku og mætum þeirri réttmæta gagnrýni á núverandi kerfi að það hamli atvinnuþátttöku og dragi úr virkni fólks.
Virðulegi forseti. Við vinnslu frumvarpsins lagði ég mikla áherslu á að huga þyrfti að stöðu þeirra einstaklinga sem fá greiddan hlutaörorkulífeyri í nýju kerfi á meðan þau leita sér að starfi við hæfi. Eru í því sambandi lagðar til breytingar á lögum um vinnumarkaðsaðgerðir þar sem gert er ráð fyrir að Vinnumálastofnun verði heimilt að greiða sérstakan virknistyrk til atvinnuleitenda sem eiga rétt á áðurnefndum hlutaörorkulífeyri á meðan á atvinnuleit stendur. Gert er ráð fyrir að meðal skilyrða fyrir virknistyrk sé að viðkomandi einstaklingar teljist í virkri atvinnuleit í skilningi frumvarpsins og er gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun veiti þeim sérstakan einstaklingsmiðaðan stuðning við atvinnuleitina. Lagt er til að fjárhæð virknistyrk nemi mismun hlutaörorkulífeyris og örorkulífeyris samkvæmt lögum um almannatryggingar. Með frumvarpinu er gert ráð fyrir að heimilt verði að greiða slíka virknistyrki til atvinnuleitanda í allt að 24 mánuði samtals.
Gert er ráð fyrir að hafi hlutaörorkulífeyrisþegi ekki fengið vinnu við hæfi með stuðningi Vinnumálastofnunar að lokinni 24 mánaða atvinnuleit geti hann óskað eftir samþættu sérfræðimati að nýju. Kann í slíkum tilfellum að vera rétt að endurmeta stöðu viðkomandi einstaklings, m.a. með hliðsjón af þeim þáttum sem hafa verið þess valdandi, að mati Vinnumálastofnunar, að ekki hafi tekist að finna starf fyrir viðkomandi einstaklinga á vinnumarkaði á þeim tíma sem viðkomandi fékk virknistyrk.
Með þessu höfum við hannað kerfi sem mætir helstu gagnrýni sem fram hefur komið á hlutaörorkulífeyri á undanförnum árum en hún hefur falist í réttmætum áhyggjum af því hvað gerist varðandi afkomu fólks fái það ekki hlutastarf við hæfi. Þetta hefur m.a. verið sterk áhersla frá Hagsmunasamtökum fatlaðs fólks og þessum áhyggjum er að fullu mætt í frumvarpi þessu.
Virðulegi forseti. Það er mikilvægt að til staðar séu stuðnings- og vinnumarkaðsúrræði fyrir fólk með mismikla starfsgetu sem styðji við þær breytingar sem felast í frumvarpinu. Samhliða vinnu við frumvarpið hefur því staðið yfir vinna við kortlagningu á endurskoðun ýmissa úrræða í tengslum við atvinnumál fólks með mismikla starfsgetu og hef ég kynnt fyrir ríkisstjórn stöðu þeirrar vinnu. Þar er m.a. horft til endurskoðunar á vinnusamningum öryrkja, stuðningi á vinnustað og fjölbreyttum stuðningi við fólk með mismunandi skerðingar. Þá samþykkti Alþingi í gær landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks til næstu ára, sem m.a. hefur að geyma tillögur um náms og starfstækifæri fatlaðs fólks og er þegar hafin vinna við að fylgja eftir þeim aðgerðum.
Virðulegi forseti. Í frumvarpi þessu er um að ræða aukinn stuðning almannatrygginga á meðan á viðurkenndri meðferð og endurhæfingu stendur í kjölfar heilsubrests og þá áður en kemur til mats á getu til virkni á vinnumarkaði samkvæmt samþættu sérfræðimati. Þannig er lagt til það nýmæli að komið verði á fót nýjum greiðsluflokki, sjúkra- og endurhæfingargreiðslum. Hér er um að ræða tímabundnar greiðslur sem ætlaðar eru til framfærslu á meðan einstaklingar fá meðferð eða tækifæri til að auka færni sína til atvinnuþátttöku eftir heilsubrest. Samhliða þessu er lagt til að endurhæfingarlífeyrir sem nú er heimilt að veita samkvæmt lögum um félagslega aðstoð falli brott.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að fjárhæð sjúkra- og endurhæfingargreiðslna verði hin sama og fjárhæð örorkulífeyris og að greiðslutímabil verði allt að 60 mánuðir og að heimilt verði að ákveða greiðslur að hámarki til 12 mánuði í senn. Að auki er lögð til þröng undantekning um að heimilt verði að framlengja greiðslutímabilið um allt að 24 mánuði ef um er að ræða einstakling í mjög viðkvæmri stöðu sem vegna fjölþættan vanda þarfnast frekari meðferðar eða endurhæfingar en það þykir sérstaklega mikilvægt að reyna til þrautar að styðja þessa einstaklinga til virkrar þátttöku á vinnumarkaði. Er því gert ráð fyrir að greiðslur geti staðið yfir í allt að sjö ár.
Lagt er til að þau sem geta átt rétt á sjúkra- og endurhæfingargreiðslum séu þau sem búa við alvarlegan eða langvarandi heilsubrest sem talinn er geta haft áhrif til frambúðar á getu þeirra til virkni á vinnumarkaði og stafi af sjúkdómi, slysi eða áfalli.
Almennt er litið svo á að hverjum manni sé skylt að framfæra sér eftir atvikum með launuðu starfi, svo fremi sem hann sé til þess fær, áður en aðstoð stjórnvalda kemur til og það á líka við hér. Því er almennt gengið út frá því að ekki komi til greiðslu nema í þeim tilvikum að langvarandi eða alvarlegur heilsubrestur leiði til þess að hlutaðeigandi verði óvinnufær. Það er mikilvægt að hafa í huga að gert er ráð fyrir að fatlaðir einstaklingar sem fá viðurkennda meðferð eða taka virkan þátt í endurhæfingu geti einnig fengið sjúkra- og endurhæfingargreiðslur en þátttaka í þeim úrræðum er talin líkleg til að auka starfshæfni og þar með auka líkur á atvinnuþátttöku.
Gert er ráð fyrir því skilyrði fyrir sjúkra- og endurhæfingargreiðslum að fyrir liggi áætlun um endurhæfingu frá þjónustuaðila eða staðfesting á viðurkenndri meðferð og er það skilyrði að viðkomandi taki virkan þátt í endurhæfingu með það að markmiði að stuðla að aukinni færni til atvinnuþátttöku að fullu eða hluta. Markmið meðferðar eða endurhæfingar er aukin færni til atvinnuþátttöku að fullu eða að hluta, líkt og áður sagði, og lokamarkmiðið er því ekki alltaf færni til fullrar atvinnuþátttöku heldur frekar aukin færni miðað við aðstæður viðkomandi hverju sinni.
Þá er það nýmæli lagt til að þrátt fyrir skilyrði um viðurkennda meðferð eða virka þátttöku í endurhæfingu er gert ráð fyrir að heimilt verði að greiða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur þegar einstaklingur bíður eftir að fá meðferð eða að endurhæfing hefjist. Við þær aðstæður þykir nauðsynlegt að einstaklingar verði ekki án framfærslu á biðtímanum enda sé viðkomandi þá ekki almennt á vinnumarkaði eða í námi á sama tíma. Sama á við um ef viðkomandi er enn of veikur til að taka þátt í fyrirhugaðri meðferð eða endurhæfingu. Hér getur t.d. verið um að ræða að einstaklingur er að ná heilsu eftir sjúkdóm, slys eða áfall og tími þarf að líða áður en hann getur farið í læknisfræðilega aðgerð eða hafið endurhæfingu svo viðunandi árangur náðst. Er með þessari breytingu er komið til móts við þá gagnrýni sem gildandi kerfi sætir um að fólk eigi ekki rétt á endurhæfingarlífeyri þegar það er of veikt til að taka þátt í endurhæfingu, er að bíða eftir að fá heilbrigðisþjónustu eða komast í endurhæfingarúrræði. Veldur það fólki eðlilega kvíða að framfærsla sé ótryggð sem getur aftur haft neikvæð áhrif á árangur þeirrar þjónustu sem viðkomandi nýtur. Með þessu er einnig verið að stækka töluvert þann hóp sem mun njóta góðs af þessum greiðslum frá því sem nú gildir. Ég tel að hér sé um löngu tímabæra breytingu að ræða og mikið framfaraskref.
Virðulegi forseti. Ég hef hér á undan fjallað um þá nýju og breyttu greiðsluflokka sem gert er ráð fyrir að verði uppistaðan í hinu nýja greiðslukerfi samkvæmt frumvarpi þessu. Auk framangreindra greiðsluflokka er gert ráð fyrir að áfram verði greidd aldursviðbót til þeirra sem fá greiddan örorkulífeyri eða hlutaörorkulífeyri. Er lagt til að miðað verði við aldur viðkomandi einstaklinga þegar skilyrði fyrir sjúkra- og endurhæfingargreiðslum voru fyrst uppfyllt eða þegar samþætt sérfræðimat lá fyrst fyrir og niðurstaða þess var að geta til virkni á vinnumarkaði var metin 50% eða minni. Í frumvarpinu er þó gert ráð fyrir að aldursviðbót verði með breyttu sniði frá gildandi lögum. Er lagt til að fjárhæð fullrar aldursviðbótar verði 30.000 kr. á mánuði og fjárhæðin lækki um 5% fyrir hvert ár eftir 24 ára aldur greiðsluþegans og að aldursviðbót greiðist ekki ef skilyrði hennar voru fyrst uppfyllt við 44 ára aldur umsækjanda eða síðar.
Tilgangur þessara greiðslna er að bæta hlutaðeigandi það að vegna aðstæðna sinna sé ólíklegt að viðkomandi hafi haft sömu tækifæri til að ávinna sér réttindi í lífeyrissjóðakerfinu og þau sem hafa verið virk á vinnumarkaði. Einnig er í frumvarpi þessu gert ráð fyrir að áfram verði greidd heimilisuppbót samkvæmt lögum um félagslega aðstoð til einstaklinga sem fá örorkulífeyri, hlutaörorkulífeyri og til þeirra sem uppfylla skilyrði fyrir sjúkra- og endurhæfingargreiðslum. Tilgangur heimilisuppbótar er óbreyttur; að koma til móts við þann kostnað sem fylgir því að hlutaðeigandi býr einn og sér einn um heimilisrekstur án þess að njóta fjárhagslegs hagræðis af sambýli eða samlögun við aðra um húsnæðisaðstöðu eða fæðiskostnað. Er gert ráð fyrir að fjárhæð heimilisuppbótar verði 15% af fjárhæð örorkulífeyris, þ.e. 57.000 kr. á mánuði.
Auk framangreindra breytinga á greiðslukerfi almannatrygginga er gert ráð fyrir að lækkun greiðslna vegna annarra tekna verði samræmd milli greiðsluflokka með þeim hætti að 45% af samanlögðum tekjum greiðsluþegans umfram frítekjumörk komi til lækkunar á samtölu allra greiðsluflokka viðkomandi einstaklings. Um er að ræða tekjur frá öðrum en almannatryggingum utan viðbótarlífeyrissparnaðar, fjárhagsaðstoðar sveitarfélaga og virknistyrks sem ekki munu teljast til tekna greiðsluþega. Þannig er gert ráð fyrir að lækkun vegna tekna verði 45%, hvort sem viðkomandi fær greiðslur úr einum eða fleiri greiðsluflokkum, en í því felst mikil einföldun sem talin er auka gagnsæi til muna.
Einnig vil ég geta þess sérstaklega að í frumvarpinu er gert ráð fyrir að frítekjumörk samkvæmt lögum um almannatryggingar hækki árlega með sama hætti og bætur og tel ég þar um mikið réttlætismál að ræða enda hafa dæmin sýnt að frítekjumörk hafa oft á tíðum staðið óbreytt svo árum skiptir og kaupmáttur þeirra rýrnað.
Framangreindar breytingar um sameiningu greiðsluflokka, einfaldari reglur um útreikning greiðslna og hækkun frítekjumarka eru taldar bæta hag þessa hóps og um leið vera til þess fallnar að gera lífeyriskerfi almannatrygginga vegna örorku- og endurhæfingar einfaldara, réttlátara og gagnsærra. Eftir þessu hefur verið kallað í langan tíma og því kalli er hér svarað.
Virðulegi forseti. Auk þeirra breytinga sem ég hef nú rakið og snúa greiðslukerfi almannatrygginga hefur frumvarpið að geyma veigamikil nýmæli sem styðja við heildstæða nálgun og samþættingu á endurhæfingarþjónustu í víðtækum skilningi. Hérlendis byggist núverandi fyrirkomulag endurhæfingar á fjórum meginstoðum sem eru í fyrsta lagi heilbrigðisþjónustan, þ.e. heilsugæslan og aðrar heilbrigðisstofnanir, í öðru lagi starfsendurhæfingarsjóðir, þ.m.t. VIRK, í þriðja lagi Vinnumálastofnun og loks félagsþjónusta sveitarfélaga. Þessi fjögur þjónustukerfi, sem nefnd eru þjónustuaðilar í frumvarpinu, starfa á grundvelli tiltekinna laga og eiga að mynda ákveðna opinbera heild, bæði á landsvísu og svæðisbundið.
Annað meginnýmæli í frumvarpinu felst í því að frumvarpinu er ætlað að innleiða breytingar á því hvernig einstakir hlutar af þessari kerfisbundnu heild spila saman. Kveðið er á um samstarf á milli endurhæfingaraðila með gerð samnings enda hefur verið gagnrýnt að samráð sé takmarkað í núverandi fyrirkomulagi og að yfirsýn skorti um þá einstaklingsbundnu þjónustu sem hver notandi nýtur á hverjum tíma. Með því er talið að tryggt verði eins og kostur er að fólk fái rétta þjónustu á réttum tíma og á réttum stað innan þjónustukerfanna. Eru þannig vonir við það bundnar að komið verði í veg fyrir að fólk falli niður á milli kerfa og stuðlað verði að snemmtækum viðbrögðum við heilsubresti. Hafist hefur verið handa við undirbúningsverkefni um skipun í frumgerð samhæfingarteymis sem starfrækt verði á suðvesturhorninu með aðkomu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.
Hitt nýmælið hér er að lagt er til að komið verði á fót þjónustugátt sem ætlað er að tryggja nauðsynlega yfirsýn yfir viðurkenndar meðferðir og endurhæfingarþjónustu sem einstaklingar fá á hverjum tíma. Tilgangur gáttarinnar er jafnframt að samfella sé bæði í þjónustu og greiðslum. Gengið er út frá því að það kalli á viðbrögð þegar gögn fara inn í gáttina og þjónustuaðilar hnippi hver í annan eftir því sem endurhæfingu vindur fram. Ákvæði laga um vinnslu persónuupplýsinga gilda um þá miðlun sem á sér stað en öryggisráðstafanir í gáttinni og aðgangsstýring mun tryggja persónuvernd og að gögn sem fara um gáttina séu áreiðanleg. Ég legg áherslu á að sérstakt mat á áhrifum á persónuvernd verður unnið þegar upplýsingatæknilegar lausnir liggja fyrir.
Virðulegi forseti. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyrir að einstaklingar sem hafa gilt örorkumat við upptöku á nýju kerfi hafi val um hvort þeir færist yfir í nýtt kerfi. Í samræmi við það er lagt til að einstaklingar sem fá greiddan örorkulífeyri samkvæmt gildandi lögum muni fá greitt í samræmi við lögin eins og þau verða eftir gildistöku breytinganna, þ.e. samkvæmt nýja greiðslukerfinu en í samræmi við gildandi örorkumats. Einstaklingar sem hafa gilt örorkumat samkvæmt eldra kerfi mun þó verða heimilt að óska eftir að geta þeirra til virkni á vinnumarkaði verði metin samkvæmt hinu nýja samþætta sérfræðimati. Kjósi þeir að gera það mun eldra örorkumat falla úr gildi og um greiðslur mun þá fara samkvæmt nýju mati og samkvæmt hinu nýja greiðslukerfi.
Hvað endurhæfingarlífeyrisþega varðar er gert ráð fyrir að þau muni fá greiðslur samkvæmt hinu nýja greiðslukerfi en í samræmi við þá endurhæfingaráætlun sem var í gildi við gildistöku hinna nýju laga. Þá er einnig gert ráð fyrir að Tryggingastofnun beri saman greiðslur samkvæmt núgildandi kerfi og hinu nýja greiðslukerfi. Útreikningar Tryggingastofnunar og ráðuneytisins sýna að allflestir örorkulífeyrisþegar munu fá mikla réttarbót með þeim breytingum sem felast í frumvarpinu en í einhverjum tilfellum munu heildartekjur örorkulífeyrisþega þó lækka. Er um að ræða annars vegar örorkulífeyrisþega sem eru með mjög háar tekjur úr lífeyrissjóðum og hins vegar tekjulága örorkulífeyrisþega sem hafa ekki áunnið sér full lífeyrisréttindi hér á landi vegna stuttrar búsetu. Til þess að koma í veg fyrir að síðarnefndi hópurinn fái lægri greiðslur eftir breytingarnar er lagt til að gerður verði samanburður á greiðslum samkvæmt eldra kerfi og hinu nýja sem tryggi þeim hópi örorkulífeyrisþega sambærilega fjárhæð og hann fær nú.
Þá vil ég geta þess að í ákvæði til bráðabirgða er lagt til að lögin skuli endurskoðuð innan fimm ára frá gildistöku þeirra. Er það í samræmi við tillögu samráðshóps um breytt framfærslukerfi almannatrygginga frá 2019, en mikilvægt þykir að lögin verði endurskoðuð innan tiltekins tíma og þegar endurskoðun laganna kemur liggi fyrir samantekt um reynsluna af hinu nýja fyrirkomulagi. Einnig er lagt til að ráðherra skipi starfshóp þriggja til fimm sérfræðinga sem greini áhrif breytinganna og meti hvort markmiðin með kerfisbreytingunum hafi náð fram að ganga.
Virðulegi forseti. Það frumvarp sem hér er lagt fram hefur í för með sér um 18 milljarða kr. árlegan kostnaðarauka fyrir ríkissjóð. Hinn aukni kostnaður felst aðallega í þeim kerfisbreytingum sem lagðar eru til og ég hef þegar lýst, einkum sameiningu greiðsluflokka og breyttum frítekjumörkum.
Talið er að kerfisbreytingin muni leiða til lækkunar nýgengis örorku og að hlutfall örorkulífeyrisþega mannfjölda á aldursbilinu 18–66 ára muni lækka. Einnig má nefna að gert er ráð fyrir að hlutaörorkulífeyrir muni stuðla að aukinni atvinnuþátttöku. Samanlagt er því gert ráð fyrir að ávinningur af áherslu á endurhæfingu og þeim kerfisbreytingum sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu verði búinn að vega upp kostnaðaraukann að fimm árum liðnum. Því til viðbótar verður að nefna hinn samfélagslega ábata sem felst í formi bættra lífsgæða, aukinna tekna lífeyrisþega sem og sparnaðar í lífeyrissjóðakerfinu.
Virðulegi forseti. Ég hef rakið þau helstu atriði sem fram koma í því frumvarpi sem er hér til umfjöllunar. Málið er brýnt og hefur farið í umfangsmikið samráð þar sem ýmsum sjónarmiðum hefur verið mætt, ekki síst frá notendum kerfisins og Hagsmunasamtökum fatlaðs fólks. Það er ljóst að í frumvarpi þessu felast gríðarlega miklar og umfangsmiklar breytingar sem varða kjör og lífsafkomu tugþúsunda einstaklinga. Það er einnig ljóst að það mun taka talsverðan tíma að undirbúa breytingarnar af hálfu Tryggingastofnunar og fleiri aðila. Einnig krefst undirbúningur að innleiðingu samþætts sérfræðimats, samstarfs við þjónustuaðila á sviði endurhæfingar og upptöku þjónustugáttar talsverðan tíma og mikilvægt að vandað verði til verka í þeim efnum. Er því lagt til að gildistaka frumvarpsins verði 1. september 2025.
Virðulegi forseti. Stærsta áhersla mín sem félags- og vinnumarkaðsráðherra hefur verið sú að skapa samfélag þar sem er pláss fyrir okkur öll. Mannréttindi, bætt kjör og aukin tækifæri til mennta og atvinnu hafa verið helstu baráttumál mín fyrir fatlað fólk. Með nýju örorkulífeyriskerfi munum við taka stærsta skref sem tekið hefur verið í langan tíma til að draga úr fátækt í hópi örorkulífeyrisþega. Hér er því um að ræða risastórt velferðarmál en ekki síður stórt mannréttindamál sem felst í tryggari framfærslu, aukinni þátttöku í samfélaginu og fleiri tækifærum til að bæta lífsgæði fólks og auðgar samfélagið.
Breytingarnar, verði þær að lögum, munu marka tímamót. Þær fela í sér nýja hugsun, breiðari nálgun og mestu umbyltingu á örorkulífeyriskerfinu frá upphafi. Fólk á ekki að mæta þröskuldum heldur þjónustu. Við þessa umbyltingu tökum við betur utan um fólk en áður og búin til umgjörð sem gerir fólki kleift að blómstra á eigin forsendum.
Leiðarljósið er skýrt: Að stuðla að bættum kjörum og aukinni virkni og meira öryggi og vellíðan fólks. Með þessu búum við til réttlátara samfélag þar sem við erum öll með og skiptum öll máli. Lengi hefur verið brýnt að endurskoða kerfi örorkulífeyris og við skuldum örorkulífeyrisþegum og fötluðu fólki að klára málið.
Hæstv. forseti. Ég hef lokið máli mínu og legg til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. velferðarnefndar.