154. löggjafarþing — 90. fundur,  21. mars 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

864. mál
[15:14]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Margt af því sem hér hefur verið talið upp er til bóta, einföldun og annað sem að því lýtur. Í frumvarpi ráðherra er lagt til að fólk með hlutaörorkulífeyri eigi rétt á svokölluðum virknigreiðslum í tvö ár frá því að það hefur atvinnuleit. Að þeim tíma liðnum falla þessar virknigreiðslur einfaldlega niður og viðkomandi verður fyrir grimmilegri tekjuskerðingu.

Í frumvarpinu segir að hafi hlutaörorkulífeyrisþegi ekki fengið starf við hæfi með stuðningi Vinnumálastofnunar að lokinni 24 mánaða atvinnuleit geti hann óskað eftir samþættu sérfræðimati að nýju. Hvaða trygging felst í þessu fyrir örorkulífeyrisþega? Hvernig tryggir þetta að einstaklingurinn festist ekki til frambúðar í fátæktargildru með 285.000 kr. á mánuði eftir skatt? Hvernig ætlar ráðherra að sjá til þess að atvinnuveitendur muni t.d. ráða fólk með skerta starfsgetu þegar það hefur ekki fengið ráðningu í þessa 24 mánuði? Og kemur til greina, í meðförum frumvarpsins, (Forseti hringir.) að það verði látið ganga sjálfkrafa inn og allur vafi og vandi verði ekki settur í hendurnar (Forseti hringir.) á örorkulífeyrisþegum?