breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Hæstv. forseti. Ég er ekki minni áhugamaður um löggildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks en hv. þingmaður. Svona aðeins til þess að setja þetta hið minnsta í norrænt samhengi þá hafa verið gerðar breytingar á lögum í öðrum norrænum ríkjum til samræmis við innihald samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks en ekkert þeirra hefur hins vegar lögfest samninginn í heild sinni eins og Ísland ætlar sér að gera. Þannig að Ísland ætlar sér í rauninni að ganga lengra en önnur Norðurlönd og það tel ég mjög jákvætt og ég er fylgjandi því. Við höfum þess vegna í stjórnarsáttmálanum klásúlu um að það eigi að gera þetta á kjörtímabilinu. Verkefnið er í forsætisráðuneytinu og samkvæmt þeirri tímaáætlun sem unnið er eftir þar er stefnt að því að koma með frumvarp á haustþingi sem felur í sér lögfestingu samningsins.