breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Virðulegur forseti. Við erum hér að ræða breytingu á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga. Við fengum heila bók, ég hefði nú viljað fá A4-blað um þá endurskoðun til að einfalda hlutina en það virkar ekki. En hér kemur fram svokallaður virknistyrkur og ég hef gífurlegar áhyggjur af honum og ég spyr hæstv. ráðherra hvort hann hafi ekki líka áhyggjur með mér. Við erum að losna við framfærsluuppbótina en mér sýnist við vera að fá enn þá meiri óskapnað með þessum virknistyrk en hún var. Þetta er miklu flóknara. Þetta eru margar blaðsíður af útskýringum um hvernig þessi blessaði virknistyrkur á að virka, sem ég tel að í sumum tilfellum virki ekki. En það sem er alvarlegast í þessu er að hann skerðist við fyrstu krónu hjá þeim sem eru komnir með vinnu. Ef einhver fær 25% vinnu, einn fjórða, 100.000 kr., þá missir hann 95.000 kr. af því samkvæmt þessum virknistyrk.