154. löggjafarþing — 90. fundur,  21. mars 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

864. mál
[15:22]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið en ég held að hann hafi misskilið þetta því ég var ekki að tala um það heldur er það oft þannig að þessir einstaklingar sem eru að fara út á vinnumarkaðinn fá hlutastarf. Ef viðkomandi fær bara hlutastarf, vegna þess að við vitum að það getur oft verið ofboðslega erfitt fyrir fatlaða einstaklinga að fá vinnu, og hann fengi bara á virknistyrknum hlutastarf upp á 25% og fengi þar af leiðandi 100.000 kr. laun fyrir hlutastarfið, þá missir hann 95.000 kr. Ég held að ráðherra hljóti að vera sammála mér að í meðferð nefndarinnar þurfum við að taka á því og sjá til þess að ef menn eru virkilega að reyna og ná því að fá eitthvert hlutastarf sem gefur þeim kannski 20–30% tekjur, þá sé það ekki rifið af þeim heldur tekið sem vilji viðkomandi til að reyna sitt besta. Við þurfum einhvern veginn að girða fyrir að það verði ekki aftur þetta krónu á móti krónu fall sem var í framfærsluuppbótinni, sem er núna 65 aurar á móti krónu. (Forseti hringir.) Ég held að við hljótum að vera sammála um það að við verðum að girða fyrir svona gildrur í þessu kerfi.