154. löggjafarþing — 90. fundur,  21. mars 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

864. mál
[15:25]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir sína framsögu. Það er löngu tímabært að sameina greiðsluflokka og hækka frítekjumörk til þess að draga úr jaðarskattbyrði öryrkja og við í Samfylkingunni styðjum slík skref eindregið. Ég vil hrósa hæstv. ráðherra fyrir þann þátt þessa máls og segja honum að hann á allan okkar stuðning til að fara með þetta alla leið í gegnum þingið.

En í þessu frumvarpi eru líka breytingar sem ég held að við verðum að fara mjög varlega í. Það eru ákvæði sem í raun fela það í sér að verið er að færa örorkulífeyriskerfið nær þeirri hugsun sem atvinnuleysistryggingakerfið byggir á með þeim kvöðum og hvötum sem þar eru. Hér á að innleiða samþætt sérfræðimat í stað örorkumats. Það er hins vegar ekki útfært í frumvarpinu. Það er bara vísað til alþjóðlegra staðla en liggur ekki fyrir nákvæmlega hvaða þættir verða metnir, hvaða sjónarmið nákvæmlega verða lögð til grundvallar við matið, hver framkvæmir það, hvernig málsmeðferðin verður heldur á ráðherra að fá svona tiltölulega opna reglugerðarheimild. Þetta er algjört grundvallaratriði vegna þess að með þessu frumvarpi er beinlínis verið að binda stjórnarskrárvarinn rétt fólks til framfærsluaðstoðar (Forseti hringir.) við þetta matstæki sem Alþingi veit ekki almennilega hvernig verður. (Forseti hringir.) Þannig að ég vil spyrja hæstv. ráðherra: Hvernig á Alþingi (Forseti hringir.) að geta tekið pólitíska afstöðu til þessa máls meðan þetta liggur ekki skýrar fyrir?