154. löggjafarþing — 90. fundur,  21. mars 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

864. mál
[15:28]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og við í velferðarnefnd munum auðvitað kalla eftir þessum upplýsingum og vakta þetta vel. Mig langar að inna ráðherra eftir aðeins nánari skýringum en má lesa út úr greinargerð frumvarpsins um það hvernig það fólk sem nýtur réttinda í núverandi örorkulífeyriskerfi mun falla innan nýja kerfisins. Ef við skoðum bara þann hóp sem hefur verið metinn til 75% örorku samkvæmt gamla kerfinu, liggur fyrir einhver úttekt á því hversu hátt hlutfall þessara einstaklinga má gera ráð fyrir að falli úr örorkulífeyri niður í hlutaörorkulífeyri eftir að þetta samþætta sérfræðimat hefur verið innleitt? Má t.d. gera ráð fyrir að einstaklingar sem eru metnir til 50–75% læknisfræðilegrar örorku samkvæmt núverandi kerfi muni í flestum tilvikum verða metnir með 25–50% getu til virkni á vinnumarkaði? Liggur fyrir einhver úttekt á þessu? (Forseti hringir.) Mér heyrist vera að komast einhver mynd á það hvernig þetta sérfræðimat mun líta út og þá geri ég ráð fyrir að það ætti að vera hægt að segja til um það (Forseti hringir.) að einhverju leyti hvernig þessi þróun verður og á því hlýtur kostnaðarmatið þá líka að byggja að einhverju leyti.