154. löggjafarþing — 90. fundur,  21. mars 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

864. mál
[15:31]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Forseti. Ég vil byrja á að óska hæstv. ráðherra til hamingju með þetta mál, ég leyfi mér að gera það, og vona að það verði að veruleika með kannski einhverjum breytingum sem þarf að gera.

Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra út í umsögn Persónuverndar við málið og viðbrögð við þeirri umsögn. Í greinargerð með frumvarpinu segir, með leyfi forseta:

„Í umsögn Persónuverndar er m.a. bent á að mat á skertri starfsorku og samstarf þjónustukerfa sem kveðið er á um í frumvarpinu feli í sér skyldur til vinnslu persónuupplýsinga.“ — Og gerir Persónuvernd þarna ákveðnar athugasemdir. Við þessu er brugðist með mjög litlum hætti, mjög almennum hætti í frumvarpinu og m.a. ekki öllum athugasemdum Persónuverndar svarað.

Mig langaði til þess að spyrja hæstv. ráðherra: Hvers vegna er ekki öllum athugasemdum svarað, svo sem um það hvort undantekning á þagnarskyldu heilbrigðisstarfsfólk sé í rauninni í reglugerð en ekki í löggjöfinni sjálfri? (Forseti hringir.) Hvers vegna ekki var brugðist við þessu með skýrari og betri hætti í samræmi við umsögn Persónuverndar?