breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að við vinnslu frumvarpsins hafi farið fram mat á áhrifum á persónuvernd sem hins vegar er ekkert nánar útskýrt í greinargerðinni. Mat á áhrifum á persónuvernd er tiltölulega skýrt skilgreint ferli þar sem þarf að fara fram ákveðinn rökstuðningur á nauðsyn vinnslu ákveðinna upplýsinga: Til hvers þarf að færa þessar upplýsingar þangað? Í hvaða tilgangi? Er hægt að gera það sem við ætlum að gera án þess o.s.frv.? Nú talar hæstv. ráðherra um að það standi til að slíkt mat fari fram þegar tölvukerfin hafa verið útfærð. Mig langar til þess að spyrja hæstv. ráðherra hvort þetta mat hafi farið fram og hvort það væri þá ekki réttara að það kæmi skýrar fram hvað kom út úr því mati ef það hefur farið fram, eða hvort það hafi kannski ekki farið fram. Það er svolítið óskýrt í greinargerð annars vegar og máli hæstv. ráðherra hins vegar.