breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Virðulegi forseti. Við erum hér að ræða frumvarp til laga um breytingu á lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyris almannatrygginga, einföldun. Ég er búinn að prenta þetta út, þetta er á 84 bls. svo ég geti lesið þetta almennilega, og ég tel það nú varla mikla einföldun en vonandi skilar það sér þegar maður er búinn að fara nokkrum sinnum í gegnum þetta, að við sjáum einhverja einföldun í þessu. En auðvitað er allt til vinnandi að einfalda þetta kerfi og fyrir því höfum við í Flokki fólksins barist ötullega. Eins og kom fram í andsvörum við hæstv. ráðherra þá hef ég svolitlar áhyggjur af því vegna þess að ég fagnaði því að það væri verið að taka út framfærsluuppbótina. Framfærsluuppbótin í kerfinu í dag er um 67.000 kr. og hún skertist áður um krónu á móti krónu en skerðist í dag um 65 aura á móti krónu og sem betur fer hefur þetta verið vandræðabarn ríkisstjórnar eftir ríkisstjórn frá því að þetta var sett á af Samfylkingu og Vinstri grænum á sínum tíma og átti að verða til bóta og örugglega tímabundið út frá bankahruninu en endaði í þeim ósköpum að verða eiginlega akkillesarhæll kerfisins og skelfilegt upp á það ef einhver vildi reyna fyrir sér á vinnumarkaði, þá var það mjög erfitt.
En í þessu kemur fram hérna að það er komið annað kerfi og eitt af því sem ég rak augun í og las og hefði viljað helst lesa upp hér í þessari ræðu er þetta um 23. gr. þar sem er verið að tala um virknistyrk. En þetta eru einar fjórar blaðsíður og ég segi það að ef ég ætlaði að lesa þetta upp bara til að sýna hversu flókinn þessi virknistyrkur hefur verið gerður þá myndi allur tími minn fara í það. Ég tel að þessi ósköp sem heita virknistyrkur þurfi að taka vel og vendilega fyrir í velferðarnefndinni vegna þess að það eru gildrur þarna. Við erum vonandi að setja upp nýtt mat, nýtt greiðslukerfi fyrir örorkulífeyrisþega til að einfalda kerfið, til að taka út allar gildrur. Og ég verð líka að segja að ég óttast ofboðslega gildrurnar í svona kerfum og ég sé strax líka, eins og kom hér fram í andsvörum, eina gildru. Það er sú gildra að þegar tvö ár í atvinnuleit eru liðin þá eigi viðkomandi að sækja um að komast inn í kerfið aftur. Jú, Tryggingastofnun á að vera tilbúin með það. En ég held að það geri sér enginn grein fyrir því nema hafa lifað í þessu kerfi hvers lags ógurlegur frumskógur og erfiðleikar það eru að fá mat. Ef einhver ætti að segja hvernig maður getur orðið sérfræðingur í mötum þá get ég bara sagt að ég held að ég sé orðinn sérfræðingur í því að verða metinn í kerfinu. Ég hef ekki tölu á því hversu mörg möt ég hef farið í á ævinni vegna þeirra slysa sem ég hef lent í. En það sem er furðulegast við öll þessi möt, sem eru örugglega komin upp í tug eða meira, er að ég fór aldrei á sama staðinn í mat. Ég fór á skrifstofu lögfræðinga, ég fór á skrifstofu lækna og ég fór á skrifstofur sem voru svoleiðis útbúnar að það voru ekki einu sinni gardínur eða nokkur skapaður hlutur og þarna stóð maður á nærfötunum og verið að snúa upp á mann og maður lá óvígur í vikur, jafnvel mánuði á eftir.
Í þessu frumvarpi hér var ég að vona að hreinlega kæmi ekki upp sú staða að einhver gæti lent í einhverjum svona óskapnaði við mat en þegar á að meta einhvern inn í þetta kerfi núna þá verður að endurmeta á 12 mánaða fresti. Ég vona heitt og innilega og ég biðla til þess að fólk verði ekki sent sem er svo illa statt að það þarf að vera í þessu kerfi í kannski 60 mánuði og fær svo líka 24 mánuði auka — þá eru það sjö möt á þessu tímabili. Ég efast um að nokkur hérna inni og ég efast um að hæstv. ráðherra myndi vilja fara í sjö möt á sjö árum. Það bara gengur ekki upp. Svo er verið að tala um að búa til nýtt matskerfi og ég spyr mig: Ef það á að gera nýtt matskerfi, til hvers í ósköpunum á þá að setja inn að einhver einstaklingur þurfi að fara í mat á 12 mánaða fresti? Ef kerfið á að virka þá hlýtur kerfið að vera að fylgjast með einstaklingnum sem kemur þarna inn og þar af leiðandi ætti ekki að vera mjög flókið að endurnýja matið án þess að viðkomandi þurfi að fara í mat í sjálfu sér vegna þess að það ætti bara að vera einhver gagnaöflun eða einfalt kerfi. Eins og ég hef oft bent á þarf matsmiðstöð í þetta kerfi. Það þarf að vera einhver einn staður þar sem þú færð alla þá þjónustu sem þú telur þig þurfa að hafa. Jú, Tryggingastofnun á að taka þetta en því miður, það verður bara að segjast alveg eins og er að við sem höfum lifað í þessu kerfi tortryggjum Tryggingastofnun ríkisins.
Ég get bara sagt ykkur dæmi um eitt mál sem ég veit um, og aðstoðaði við að ná því mati fram. Viðkomandi fór til læknis úti í bæ og hann fór í gegnum matið sem er í gildi í dag og spurði einstaklinginn allra þeirra spurninga sem þar voru inni. Síðan kom að kafla þar sem viðkomandi var spurður: Ertu með geðræn vandamál? Hver vill í fljótu bragði segja: Já, já, já, ég er með fullt af geðrænum vandamálum, ég er með þetta, þetta og þetta. Viðkomandi áttaði sig bara ekki á þessari spurningu og sagði: Nei, nei, ég er bara með verki í skrokknum og svona, það eru engin alvarleg geðræn vandamál hjá mér. Síðan lauk matinu. Niðurstaðan úr matinu var að viðkomandi væri ekki hæfur inn í endurhæfingarlífeyrinn. Af hverju? Jú, vegna þess að hann skoraði fullt í öllu nema því að hann var ekki með geðræn vandamál og þá fyllti hann ekki upp í það gat sem þurfti til að komast inn. Hvað þurfti viðkomandi einstaklingur að gera? Jú, hann þurfti að vera áfram tekjulaus, eða réttara sagt vera á framfæri bæjarfélagsins, og kæra. Og jú, hvert átti hann að kæra? Hann átti að kæra til úrskurðarnefndar velferðarmála. Það er orðið flókið batterí í dag. Ég hef nú kært þangað en það er alltaf að verða flóknara og það þarf eiginlega að vera lögfræðimenntaður til þess að geta kært þangað. Hann kærði það og það tók rúmt ár. Þá kom niðurstaðan: Hann átti að fá upphaflega matið, endurhæfingarmatið. Það átti að spyrja hann út í geðræn vandamál en ekki að spyrja hann að því heldur fara í spurningarnar og spyrja nákvæmlega: Finnur þú fyrir þessu hérna og finnur þú fyrir þessu þarna? Það var ekki gert. Það eru svona göt og svona rugl sem ég er að vona að nýtt mat sem á að byggja upp taki út og viðkomandi þurfi vonandi ekki að fara nema einu sinni í mjög ítarlegt mat, vegna þess að það gera sér allir grein fyrir því sem hafa farið í þetta að það er alveg feikinóg.
Síðan ef við förum aðeins að grúska í þessu, mér finnst ofboðslega sorglegt í þessu núna eins og ég sé hérna, jú, það er kannski hægt að — ég veit ekki hvernig á að rökstyðja það en einstaklingur sem er fæddur öryrki, við 18 ára aldur, sem er alveg skelfileg staða að vera í og þú veist kannski að þú kemur til með að verða óvinnufær það sem eftir er ævinnar og þú ert 18 ára gamall og þá lendirðu inni í þessu kerfi, samkvæmt þessu áttu að vera að hækka um 4.000 kall, en, spáið í það, samt á að takast að lækka aldursuppbót þessa einstaklings, sem er í dag 63.000 kr., lækka hana niður í 30.000 kr. á mánuði. Ég skil ekki þessi rök vegna þess að þarna hefði ég haldið og hef alltaf barist fyrir því að viðkomandi haldi þessu og meira að segja haldi þessu eftir, að þetta verði hálfgerð lífeyrisréttindi viðkomandi þegar hann fer á ellilífeyri. En eins og við höfum rætt, ég og hæstv. ráðherra, hefur það komið skýrt fram að við 67 ára aldur missa þessir einstaklingar þessa aldursuppbót og það þarf að breyta lögum um almannatryggingar varðandi ellilífeyri til að gera það og það virðist ekki vera á döfinni, þannig að fólki sem er búið að vera fatlað frá fæðingu, frá 18 ára aldri í kerfinu, er refsað fyrir það að verða 67 ára, sem er auðvitað alveg skelfilegt.
Síðan er annað í þessu sem er skrýtið. Heimilisuppbótin er þarna inni en hún á að lækka úr 68.213 kr. í 57.000 kr. sem ég botna ekki í. Hvers vegna í ósköpunum er verið að því? Ég hefði viljað hækka hana frekar en lækka hana þannig að það er eitthvað skrýtið við þetta.
Ég sé líka að einstaklingur sem er 45 ára við fyrsta mat og býr einn á að fá alveg gífurlega hækkun ef hann er með engar aðrar tekjur, það eru heilar 803 kr. Ég spyr mig: Flestir eru að fá 33.000 eða 30.000, hvers vegna í ósköpunum eru þessir tveir einstaklingar — þ.e. þessi einstaklingur sem er 45 ára og eldri með engar tekjur fær bara 800 og svo fá þessir sem eru fæddir öryrkjar bara 4.000. Af hverju fá þeir ekki bara 30.000 kr. eins og allir hinir? Af hverju erum við alltaf að skilja einhvern út undan? Af hverju erum við alltaf að reyna að búa til eitthvert kerfi þar sem einhver verður eftir og fær minna? Ég bara skil það ekki vegna þess að það segir sig sjálft að það lifir enginn sældarlífi eins og þessi einstaklingur sem er að fá 800 kr. Hann er að reyna að tóra á einhverjum 300.000 kr. útborguðum. Ég segi fyrir mitt leyti: Af hverju? Hvernig í ósköpunum á hag þessara einstaklinga að vera betur borgið með því að fá aukalega út úr þessu kerfi 800 kr., eða 803 kr. held ég að það hafi verið. Þetta er svo nákvæmt að maður verður eiginlega orðlaus yfir því. (Gripið fram í: Það þyrfti að námunda … )Það hefði verið hægt að námunda þetta í a.m.k. 900 kr., ég veit það ekki, eða hafa þetta bara 800 kr. sléttar, það er mun einfaldara, en ég hefði viljað sjá að meðaltalshækkunin hefði náð til viðkomandi, það sem er neðst hjá hinum eru þó alla vega 30.000 kr.
Það er hellingur af öðru sem maður gæti tekið út úr þessu. Ég vil bæta kerfið og ég er sammála því að við verðum að geta bætt við, t.d. er gott þarna inni almenna frítekjumarkið upp á 100.000 kr. en ég spyr mig: Nú á þetta að taka gildi 1. september 2025, almannatryggingakerfið fyrir eldri borgara var endurskoðað árið 2016. Síðan þá hefur ekkert verið gert í kerfi öryrkja. Ég var að reyna að reikna það út, ég held að sparnaður ríkisins hafi verið eitthvað í kringum 150–160 milljarða á þessu tímabili ef þeir hefðu endurskoðað líka örorkukerfið á sama tíma. Þannig að miðað við þessa 18 milljarða sem eiga að fara inn í kerfið þá sýnist mér öryrkjarnir vera að borga sjálfir næstu tíu árin, liggur við, þessa innspýtingu. Ég hefði viljað fá meiri innspýtingu og ég hefði viljað sjá hærri upphæðir vegna þess að, eins og ég segi og bendi þarna á, einstaklingur með 300.000 kr. sem er að fá þarna 800 kr. hækkun, 300.000 kr. rétt rúmar útborgaðar, þarf að nota þann pening bæði í húsaleigu, mat og annað og það segir sig sjálft að það lifir enginn glamúrlífi á þeirri upphæð þannig að viðkomandi hefði alveg mátt fá 30.000 kall. Þá hefði það kannski skilað honum 20.000 kr. aukalega. Ég efast um að það færi nokkuð með fjárhag ríkissjóðs. Ég trúi því alveg statt og stöðugt að ráðherra sé sammála mér í því að það myndi ekki kosta einhvern óhemjupening að sýna það og líka sjá til þess að þessir fæddu öryrkjar hefðu fengið sömu upphæð. Þetta eru ekki stórar upphæðir í samhenginu en þær skipta nefnilega máli fyrir þennan hóp sem er svo illa staddur að hann hefur ekki möguleika á að auka tekjur sínar. Þá skiptir hver einasta króna gífurlegu máli.
Ég sé það nú að tíminn hjá mér er útrunninn en ég ætla að ræða þetta meira og þess vegna bið ég hæstv. forseta að setja mig aftur á mælendaskrá.