154. löggjafarþing — 91. fundur,  22. mars 2024.

Störf þingsins.

[10:44]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V):

Forseti. Endurmat hagsmuna er skylda stjórnvalda á hverjum tíma. Í flestum ríkjum og stofnunum Evrópu hefur innrás Rússa í Úkraínu leitt til mikillar umræðu og endurskoðunar á viðhorfum og stefnu. Nærtækast er að benda á umskiptin í Finnlandi og Svíþjóð með aðild þeirra að NATO. Þar var ákveðið að ráðast í endurmat og á grundvelli þess skipt um áratugagamla stefnu og sótt um aðild. Það blasir við öllum að innrás Rússa í Úkraínu mun hafa langvarandi og djúpstæð áhrif á samvinnu og samstarf Evrópuríkja. Þess vegna þarf að þétta raðirnar og gæta þess um leið að stjórnarfar, mannréttindi, frelsi og öll samskipti innan Evrópu sjálfrar lúti þeim gildum sem við erum flest sammála. Evrópa, þar sem þungamiðjan er ESB-ríkin og náið samstarf þeirra, þarf að styrkja innviði sína og huga sem aldrei fyrr að sjálfbærni og sjálfstæði sínu á öllum sviðum.

Forseti. Ísland á hér gríðarlega mikilla hagsmuna að gæta. Þá þarf að verja. Nærtækasta leiðin og sú sem blasir við sjónum er að Ísland gangi í Evrópusambandið. Það er einmitt skýr stefna Viðreisnar. En það veldur vonbrigðum að íslensk stjórnvöld taka þessum breyttu aðstæðum og þýðingu þeirra fyrir stöðu Íslands í alþjóðasamfélaginu af einkennilegu fálæti. En fálætið ætti þó sjálfsagt ekki að koma manni á óvart í ljósi þess að stjórnarflokkarnir keppast um að smætta umræðuna um aðild að ESB og beina sjónum að einangruðum atriðum í stað þess að horfa á heildarmyndina. Sá grunur læðist óneitanlega að manni að þar sé hin rótgróna sérhagsmunagæsla á ferðinni.