Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Nú þegar mikilvægir kjarasamningar hafa náðst með veglegri aðkomu ríkisins er ég bjartsýn á að með sameiginlegu átaki muni verðbólgumarkmið nást og vextir fara lækkandi. En allt kostar peninga og sama krónan verður ekki notuð tvisvar. Þá eru góð ráð dýr. En sú sem hér stendur er dálítið uggandi yfir þeim áformum sem nú standa fyrir dyrum um sameiningu stofnana. Áform hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um stofnanasameiningu valda mér verulegum áhyggjum og þá fyrst og fremst hvað varðar minjavernd í landinu. Ólíkum tölum hefur verið haldið á lofti um hve mikla fjármuni eigi að spara og hvort ekki sé ógerningur að ná því fram án uppsagna starfsfólks.
Nú er það svo að margar stofnanir ríkisins hafa barist í bökkum og átakanlega skort nægjanlegt fjármagn til að sinna lögbundnum verkefnum sínum. Með því að sameina fjársveltar stofnanir, hugsanlega að segja upp fólki með ómetanlega þekkingu, menntun og reynslu á sínu fagsviði, spyr ég mig hver verði að lokum ávinningurinn fyrir sjálfa málaflokkana. Mér þætti gagnlegt að vita hvað hæstv. ráðherra sér fyrir sér að ríkið geti sparað með sameiningu stofnana. Ég sé ekki hvernig hægt er að ná fram meiri háttar hagræðingu án þess að það komi til uppsagna, en ég hef ekki skilið að það sé markmiðið með sameiningunni. Mannauðurinn er mikill og af því eru raunverulegar áhyggjur innan fagstétta að óraunhæft sé að ná fram markmiðunum einungis með sameiginlegum starfsstöðvum, stoðþjónustu og fleira. En nú er það svo að flestar þær stofnanir sem falla undir ráðuneyti hæstv. ráðherra hafa lýst yfir áhuga á einmitt slíku auknu samstarfi, sem að mínu mati væri skynsamlegri leið.
Virðulegi forseti. Ótti minn snýr ekki síst að því að þegar á hólminn er komið verði verkefnum útvistað og tap verði á mannauði sem muni á endanum hafa með sér aukin útgjöld og minna hagræði ef eitthvað er. Ég treysti því að í meðförum þingsins á þeim málum sem berast (Forseti hringir.) um sameiningu ríkisstofnana, hverjar svo sem um ræðir, verði þessum sjónarmiðum gefinn gaumur og að mikilvægir málaflokkar (Forseti hringir.) muni ekki líða fyrir fljótfærni eða hagræðingarkröfu.