Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í gær voru breytingar á búvörulögum samþykktar á Alþingi, breytingar sem skipta máli. Þessum breytingum er ætlað að styðja við endurskipulagningu og hagræðingu í slátrun og kjötvinnslu á þann veg að heimila afurðastöðvum í kjötiðnaði að sameinast og gera með sér samkomulag um verkaskiptingu milli afurðastöðva og að því er varðar framleiðslu einstakra kjötafurða og hafa með sér annars konar samstarf. Þetta er liður í því að halda niðri kostnaði við framleiðslu, geymslu og dreifingu kjötvara. Íslenskar landbúnaðarvörur eiga í samkeppni við innfluttar vörur. Það er því mikilvægt að fundinn verði upp samvinnugrundvöllur matvælaframleiðenda hér á landi til að bregðast við ört vaxandi samkeppni að utan. Í alþjóðlegum samanburði eru innlendar afurðastöðvar í kjötiðnaði örsmáar og því ekki samkeppnishæfar við afurðastöðvar á erlendum mörkuðum sem eru mun stærri og hagkvæmari rekstrareiningar.
Árið 2004 var starfsumhverfi mjólkuriðnaðarins gerbreytt með breytingu á 71. gr. búvörulaga. Sú breyting veitti afmarkaða undanþágu til afurðastöðva í mjólkuriðnaði frá gildissviði samkeppnislaga. Á grundvelli þessa ákvæðis hefur orðið mikil nýsköpun og stórfelld hagræðing í söfnun, vinnslu og dreifingu mjólkurvara.
Forstjóri Samkeppniseftirlitsins hefur brugðist við með stóryrðum og myrkri og boðar heimsósóma fyrir íslenska bændur og neytendur. Segir að hér sé verið að veikja samningsstöðu bænda gagnvart viðsemjendum sínum. En sjá, hér er ljós í IV. kafla búvörulaga sem fjallar um verðlagningu á búvörum. Þar eru framleiðendur með lagalega stoð fyrir verðlagsnefnd, ákveðið lágmarksverð til bænda á afurðum þeirra. Bændur um allt land fagna þessari breytingu og forysta bænda hefur tekið undir þetta.
Framsókn hefur ávallt verið óhrædd við að benda á það augljósa og hefur lagt til þessar breytingar frá árinu 2018. Loks náðum við meiri hluta fyrir þessum mikilvægu breytingum. Það er þó naumur meiri hluti sem vill verja íslenska landbúnaðinn hér á Alþingi. (Forseti hringir.) En, virðulegi forseti, Framsókn hefur tryggt að íslenska páskalambið renni ljúflegar niður í ár.