eignarréttur og erfð lífeyris.
Herra forseti. Hér erum við að ræða ágæta og góða tillögu sem ég er alveg viss um að verði umræða næstu ára í meira mæli, þ.e. um lífeyrissjóðakerfið okkar. Það er ansi mikill hluti af launakostnaði sem fer í þennan lið. Það sem þessi tillaga fjallar um er í rauninni einstaklingsfrelsið, að sá sem býr til verðmætin og fær greitt fyrir þau fái að ráðstafa þeim hluta í meira mæli og hafa meira um það að segja þannig að þetta er sannkölluð einstaklingsfrelsistillaga. Í þessari umræðu um lífeyrissjóðsmálin erum við að tala svolítið um krónur og aura en auðvitað verðum við líka að horfast í augu við það að þeir sem eru hættir að vinna eru í rauninni að taka til sín framlag hinna sem eru eftir á vinnumarkaði. Ef það kemur hér einhver kreppa þótt síðar verði þá mun það með einum eða öðrum hætti lenda á þeim sem eru hættir að vinna, hvað svo sem búið er að leggja upp með á fyrri stigum eða á fyrri áratugum í gegnum lífið. Það er bara þannig.
Við erum hérna með frelsistillögu, einstaklingsfrelsistillögu. Það er nú svolítið undarlegt að einmitt svona tillaga fái ekki meiri stuðning og umræðu hjá þeim sem telja sig vera málsvara frelsisins. En það er ekki. Það er einnig mikilvægt að þeir sem eru að búa til þennan auð með vinnu sinni og fá greitt fyrir það inn í þessa sjóði hafi alfarið með ráðstöfun þess fjár að gera. Ég tel að það sé bara eina vitið. Það sem við höfum kannski séð hvað varðar ráðstöfun fjármagns úr lífeyrissjóðunum, þegar Samtök atvinnulífsins hafa verið að ráðskast með þessa fjármuni í of miklum mæli, er að þá eru lífeyrissjóðirnir jafnvel og forysta þeirra, sem atvinnurekendur skipa jafnan, að nota það jafnvel í valdabaráttu innan stórfyrirtækja og þegar verið er að berjast um völd í einhverjum fyrirtækjum, sem kemur þeim sem hafa skapað þennan auð lítið við.
Það er ákveðinn söknuður að því í íslensku samfélagi í dag að tekist sé á við húsnæðisvandann. Ef vel ætti að vera þá væri í rauninni skynsamlegast að lífeyrissjóðakerfið kæmi meira að þeirri úrlausn með fjármagni. Það myndi koma launamanninum vel og myndi leysa úr margþættum vanda í samfélaginu. Húsnæðiskostnaður er orðinn gríðarlegur og þarna er fjármagn sem ég tel augljóst mál að ætti að fara betur inn í það.
Þegar við erum að tala um peninga þá er það bara ávísun á verðmæti og ef maður fer yfir hinn raunverulega lífeyrissjóð landsmanna þá er hann auðvitað falinn í auðlindum þjóðarinnar, falinn í fiskimiðunum, í orkunni og falinn í fólkinu sjálfu en ekki endilega því sem stendur inni í þessum tölum lífeyrissjóðanna. Það þarf auðvitað að treysta á að það sé vel farið með þá þætti og að þeir séu nýttir þjóðinni til heilla og að menn standi jafnir til nýtingar sameiginlegra auðlinda. Þannig að það er að ýmsu að hyggja í þessu máli.
Rauði þráðurinn í þessari tillögu er að einstaklingurinn fái að ráða. Hvaðan kemur andstaðan við svona tillögur? Hún kemur nefnilega úr óvæntri átt. Hún kemur frá Sjálfstæðisflokknum sem hefur gleymt einstaklingsfrelsinu. Það kemur fram hér í furðulegri andstöðu flokksins við handfæraveiðar, þeir vilja koma grásleppuveiðum inn í einhverjar elítur. Flokkurinn er orðinn elítuflokkur. Ég tel að þessi tillaga sé einfaldlega góð leið til að byrja á að snúa ofan af þessari elítuvæðingu Íslands, fá hér venjuleg viðhorf inn í lífeyrissjóðina þannig að þeir séu nýttir til góðra og þarfra verka á borð við það að koma til móts við þann gríðarlega húsnæðisvanda sem nú er að hrjá þjóðina. Þetta er virkilega góð tillaga sem Flokkur fólksins hefur lagt fram og þó að málið komist ekki í gegnum þetta þing þá er von á kosningum, hvenær sem þær verða, og þá vænti ég þess að mál eins og þetta komist í brennidepil umræðunnar og fleiri muni fylkja sér um þessi mál og um flokkinn sem ber þau fram.