Yfirlýsing forsætisráðherra og umræður um hana.
Virðulegi forseti. Hér spyr hv. þingmaður um innflytjendamálin og já, sú stefna sem ríkisstjórnin kynnti nýlega í innflytjendamálum, sem er málaflokkur sem teygir sig yfir hælisleitendur, þá sem leita hingað alþjóðlegrar verndar til Íslands, sumir eiga rétt á að fá alþjóðlega vernd, aðrir eiga ekki rétt á því og verða að yfirgefa landið, en líka yfir þá sem hafa flutt hingað til að vinna, starfa, ala upp börn, vera virkir þátttakendur í samfélaginu, alls konar fólk með alls konar ólíkan bakgrunn, — það er innflytjendastefnan og hún verður m.a. að fjalla um það sem nefnt hefur verið sem inngilding eða aðlögun að samfélaginu, aðlögun að tungumálinu, menningunni, skólakerfinu o.s.frv. Þetta er stórmál. Varðandi hælisleitendamálin, fyrir utan frumvörpin sem hæstv. ráðherra er með hér á þinginu, þá ætlum við í kjölfar þess að þau hafa verið afgreidd hér á þessu þingi (Forseti hringir.) að fara í vinnu við að aðlaga íslensku löggjöfina að því sem er að gerast á Norðurlöndunum.