Yfirlýsing forsætisráðherra og umræður um hana.
Forseti. Það er krafa um árangur sem við í Samfylkingunni höfum heyrt í 180 fyrirtækjum um land allt og á 26 opnum fundum um atvinnu og samgöngur núna frá áramótum. Þjóðin gerir kröfu um árangur sem þessi ríkisstjórn hefur ekki náð og mun ekki ná nema hún breyti um stefnu. Það er ekki nóg að höfuð ríkisstjórnarinnar fari í forsetaframboð og að veita svo öðrum ráðherrum stöðuhækkun koll af kolli, að því er virðist allra helst þeim sem hafa gert alvarlegustu afglöpin í sínum fyrri embættum. Þetta er sama fólkið með sömu stefnu í nýjum stólum.
Og hvað hefur breyst í raun sem skiptir einhverju máli fyrir fólkið í landinu? Ekkert. Ekki neitt. Það hafa engar breytingar verið kynntar sem benda til þess að ríkisstjórnin muni núna skyndilega fara að ná einhverjum árangri í mikilvægustu málaflokkunum fyrir land og þjóð. Það er bara keyrt á sömu stefnu eins og hún hafi gefist eitthvað sérstaklega vel það sem af er kjörtímabili. Ég ætla bara að segja að það hefði verið meiri sómi að því, forseti, ef nýr hæstv. forsætisráðherra og bandamenn hans hefðu horfst í augu við stöðuna eins og hún er, viðurkennt vandann sem þessi ríkisstjórn hefur skapað og boðað hér skýra stefnubreytingu. Þetta getur ekki haldið áfram svona. Þjóðin veit það, þau vita það sjálf og þau munu þurfa að axla ábyrgð gagnvart kjósendum þegar þar að kemur.
Forseti. Förum aðeins yfir þá stöðu sem fráfarandi ríkisstjórn skildi eftir sig. Vextir háir, verðbólga mikil og hömlulaus húsnæðismarkaður, ófjármögnuð útgjöld upp á 80 milljarða næstu árin, ófjármögnuð útgjöld vegna Grindavíkur, engin fjármálaáætlun, samgönguáætlun situr föst, framkvæmdastopp í orku- og samgöngumálum. Og við fengum, forseti, rétt í þessu staðfestingu á því frá hæstv. forsætisráðherra að það verði enn frekari frestun framkvæmda. Engin svör komu a.m.k. fram um hvernig þau myndu koma í veg fyrir áframhaldandi frestun, önnur en gamaldags hræðsluáróður um skatta. Við sjáum sem sagt áfram framkvæmdastopp. Ég leyfi mér að kynna stóra núllið frá 2017. Framkvæmdir við núll, ný jarðgöng á Íslandi núll, nýjar virkjanir yfir 10 mW núll, og núll ný virkjanaleyfi í gildi, hvort sem litið er til virkjana sem nýta vatnsafl, jarðvarma, vind eða aðra orkugjafa. Þetta er sú staða sem fráfarandi ríkisstjórn skilur eftir sig og sem þessi svokallaða nýja ríkisstjórn fær í arf. Og nú er talað og talað um einhverja stórsókn í orkumálum en tekið skýrt fram að það sé engin stefnubreyting samt hjá þessari ríkisstjórn og engar nýjar aðgerðir kynntar. Hvað getur maður sagt?
Það sama mætti segja í útlendingamálum þar sem ríkisstjórnin hefur séð um að skapa öll sín stærstu vandamál sjálf með undanþágum, hringlandahætti og illa unnum lagafrumvörpum. Nú er sagt að allt sé að fara að smella án stefnubreytingar. Hvað er þá verið að gefa í skyn? Að fráfarandi forsætisráðherra hafi verið vandamálið? Eða er þetta kannski bara tómt tal hjá ríkisstjórninni enn einu sinni til að réttlæta þrásetu sína án árangurs? Þjóðin gerir kröfu um árangur og það kallar á stefnubreytingu.
Ég nefni orkumál og útlendingamál sérstaklega, forseti, vegna þess að þetta eru þeir málaflokkar sem nýr hæstv. forsætisráðherra segist leggja mesta áherslu á. Það er alveg rétt að þarna hefur ríkisstjórnin alls ekki staðið sig í stykkinu. Þetta eru mikilvægir málaflokkar en ég velti því nú samt fyrir mér hvers vegna nýr forsætisráðherra hefur ekki talað af sama þunga um efnahagsmálin og nauðsynlegar aðgerðir sem fráfarandi ríkisstjórn tókst að setja á hvolf með þeim afleiðingum að stýrivextirnir eru í 9,25% og verðbólgan hefur ekki verið nálægt markmiði Seðlabankans í fjögur ár. Og hún fór upp, herra forseti, í síðustu mælingu.
Hver er stefnan? Hver er stjórnarstefnan í efnahagsmálunum, önnur en að benda á mögulegar spár um þróun verðbólgu hjá Seðlabanka Íslands þegar líður á árið? Er nýr hæstv. forsætisráðherra á þeirri skoðun að það þurfi bara ekkert að fjármagna aukin útgjöld ríkisins upp á 80 milljarða á næstu árum nema þá helst með áframhaldandi framkvæmdastoppi? Þannig hefur ríkisstjórnin talað hérna síðustu vikur og hrósað sjálfri sér fyrir að auka bara útgjöldin án þess að finna nokkra fjármögnun á móti til að vega upp á móti verðbólguáhrifum. Þannig hefði Samfylkingin aldrei gert þetta, enda höfum við haft það sem reglu að koma aldrei með útgjaldatillögur inn í þingið nema þær séu fjármagnaðar og helst gott betur á þessu verðbólguskeiði sem hefur verið á vakt ríkisstjórnarinnar.
Forseti. Verkalýðshreyfingin og Samtök atvinnulífsins eiga hrós skilið fyrir sitt upplegg í kjarasamningum en aðkoma ríkisstjórnarinnar verður bara að skoðast sem óábyrg og ókláruð á meðan ekkert er komið fram um fjármögnun. Eða er hugmyndin að moka þessu bara yfir á næstu ríkisstjórn sem mun þurfa að taka til eftir ykkur? Ef það er málið þá munu kjósendur sjá um að veita þessari ríkisstjórn ráðningu því að þetta er engin leið til að taka á verðbólgunni eða ná aftur stjórn á efnahagsmálunum. Ég segi bara við nýjan hæstv. forsætisráðherra: Það eru efnahagsmálin, efnahagur venjulegs fólks, sem hæstv. ráðherra ætti að taka á, ekki að treysta bara á spá um framtíðina. Það hefur ekki gengið nógu vel og það dugar ekki að reyna að beina bara sjónum að orkumálum og útlendingamálum og vona að hitt gleymist. Það gleymist ekki.
Forseti. Allt of mikil orka hefur farið í það hver situr í hvaða stól; fjölgun ráðherra, nýir ráðherratitlar, afsögn, endurkoma og framboð. Og svo þessi þráseta. Ég held að fólkið í landinu klóri sér bara í kollinum yfir þessu. Það horfir bara á verkefnin og það gerir kröfu um árangur eins og við í Samfylkingunni. En eftir því sem ríkisstjórnin situr lengur þá vaxa náttúrulega vandamálin og þau verkefni sem munu bíða nýrrar ríkisstjórnar að loknum næstu kosningum. Þetta hefur gengið allt of lengi og þess vegna hefur Samfylkingin gætt þess að halda því kirfilega til haga að það mun taka sinn tíma að koma Íslandi aftur á rétta braut. Það mun taka tvö kjörtímabil í öruggum skrefum. Samfylkingin hefur fyrst og fremst verið að vinna sína vinnu, undirbúningsvinnu, til að vera tilbúin til að taka við stjórnartaumunum, fáum við til þess umboð hjá þjóðinni. Í sjálfu sér breyta nýjustu stólaskiptin í ríkisstjórninni engu fyrir verkefni okkar í Samfylkingunni. Verkefni okkar er og verður áfram að veita fólkinu í landinu von, að sýna fram á að við getum snúið við þessari stöðu í stjórnmálunum og komið áfram mikilvægum málum, náð árangri sem fólkið í landinu finnur virkilega fyrir.
Forseti. Í fyrra kynntum við örugg skref í heilbrigðis- og öldrunarmálum, verklýsingu fyrir nýja ríkisstjórn til tveggja kjörtímabila, fimm þjóðarmarkmið og örugg skref í þessum mikilvægu málaflokkum. Þetta útspil var afrakstur af hátt í 40 opnum fundum með almenningi um land allt og öðru eins af fundum á vinnustöðum, með fólki á gólfinu og öðrum sérfræðingum um heilbrigðiskerfið. Síðustu mánuði höfum við síðan tekið fyrir atvinnu og samgöngur á svipaðan hátt, með skipulagðri vinnu, öflugum stýrihópi, heimsóknum í 180 fyrirtæki og opnum fundum um land allt. Í næstu viku munum við kynna nýtt útspil Samfylkingarinnar, kröfu um árangur í atvinnu- og samgöngumálum með þremur grundvallarkröfum og aðgerðum til árangurs í þessum málaflokkum. Þar er sem dæmi komið inn á orku, samgöngur, auðlindanýtingu, atvinnustefnu og rekstrarumhverfi fyrirtækja. Útspilið verður kynnt á flokksstjórnarfundi okkar á Laugarbakka þann 20. apríl og ég er viss um að ríkisstjórnin og fólkið í landinu mun veita þessum áherslum okkar athygli enda ástæða til og sama hvaðan gott kemur.
Aðalatriðið, forseti, er að við hefjum aftur kraftmiklar framkvæmdir hérna sem fyrst með stefnu og forystu sem treystir sér í verkin. Við höfum breytt Samfylkingunni, fært okkur nær fólkinu í landinu og sýnt að við getum markað skýra stefnu og rifið hluti í gang. Vonin er sú að okkur verði treyst til að stjórna eftir næstu kosningar en þangað til má vona að sitjandi ríkisstjórn fái innblástur til góðra verka. Það eru nefnilega gerðar ríkar kröfur til hverrar ríkisstjórnar um árangur. Gangi ykkur vel.