154. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2024.

Frestun á skriflegum svörum.

[10:32]
Horfa

Forseti (Oddný G. Harðardóttir):

Borist hafa bréf frá mennta- og barnamálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 1217, um styrki til félagasamtaka, og á þskj. 1282, um nefndir á vegum ráðuneytisins og kostnað vegna þeirra, báðar frá Berglindi Ósk Guðmundsdóttur, og á þskj. 1159, um námsgögn, frá Ágústi Bjarna Garðarssyni.

Einnig hafa borist bréf frá heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurn á þskj. 1220, um styrki til félagasamtaka, frá Berglindi Ósk Guðmundsdóttur, og eftirfarandi fyrirspurnum frá Evu Sjöfn Helgadóttur; á þskj. 1265, um skaðaminnkandi aðgerðir vegna ópíóíðavandans, á þskj. 1262, um sjálfsofnæmissjúkdóma, á þskj. 1261, um skort á geðlæknum, á þskj. 1259, um skjaldkirtilssjúkdóma, á þskj. 1263, um ADHD-lyf og svefnlyf, og að lokum á þskj. 1260, um geðdeildir.

Þá hafa borist bréf frá félags- og vinnumarkaðsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 1218, um styrki frá félagasamtökum, frá Berglindi Ósk Guðmundsdóttur, á þskj. 324, um búsetuúrræði fatlaðs fólks, frá Bryndísi Haraldsdóttur, á þskj. 442, um greiðslur almannatrygginga, frá Jóhanni Páli Jóhannssyni, og á þskj. 1239, um hatursorðræðu og kynþáttahatur, frá Brynju Dan Gunnarsdóttur.