154. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2024.

staða heilsugæslunnar.

[10:35]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Frú forseti. Það fer of mikill tími í skriffinnsku og of lítill tími í að sinna sjúklingnum. Þetta er lýsing sem við í Samfylkingunni heyrum aftur og aftur þegar við fundum með heilbrigðisstarfsfólki. Í þessu samhengi vil ég ræða sérstaklega um heilsugæsluna. Þar hefur staðan þyngst alveg gríðarlega á undanförnum árum eftir því sem heilsugæslan fær fleiri og flóknari verkefni í fangið án þess að þjónustan sé fjármögnuð almennilega og án þess að það takist að laða til starfa fólk með góðum launum og góðum starfsaðstæðum. Það kostar peninga. En svo er líka hægt að gera ýmislegt til að draga úr sóun og tryggja að starfskraftar nýtist betur. Staðreyndin er nefnilega þessi: Á sama tíma og bið eftir þjónustu lengist og lengist og á sama tíma og mönnunarvandinn ágerist þá er skriffinnska og vottorðagerð og tilvísanagerð og handtök fyrir framan tölvuskjá í handónýtu og úreltu sjúkraskrárkerfi allt saman að aukast með hverju árinu. Ég talaði við heimilislækni um daginn. Hann lýsti því þannig að hann væri aftur og aftur að finna sig nauðugan viljugan í eins konar varðhundshlutverki fyrir atvinnurekendur, atvinnurekendur sem eru að nota kröfuna um veikindavottorð sem ögunartæki gagnvart starfsfólki, fyrst og fremst gagnvart lágtekjufólki og gagnvart innflytjendum. Þetta er misnotkun á heilbrigðiskerfinu okkar, þetta er sóun og þetta á ekki að vera hlutverk heilsugæsluþjónustunnar.

Hvað ætlar hæstv. heilbrigðisráðherra að gera til að vinna gegn þessari sóun? Ætlar ráðherra ekkert að gera með tillögur frá starfshópi um vottorðagerð sem bárust hérna fyrir einu og hálfu ári? Hvað er eiginlega að frétta af þessum málum? Til hvaða aðgerða ætlar hæstv. heilbrigðisráðherra að grípa til til þess að heilbrigðisstarfsfólk geti varið minni tíma í skriffinnsku og meiri tíma í að sinna sjúklingum?