staða heilsugæslunnar.
Hæstv. forseti. Ég ítreka þakkir. Varðandi sjúkraskrárkerfið þá höfum við verið með það í skoðun núna og í svokallaðri fýsileikakönnun um það hvort við eigum að skipta hreinlega út eða vinna áfram með þetta kerfi. Það er unnið með Ríkiskaupum og embætti landlæknis og hlutaðeigandi aðilum, þ.e. um stöðuna núna varðandi sjúkraskrárkerfið. Ég tek undir það að sjúkraskrárkerfið á að virka fyrir sjúklingana.
Ég ætlaði að koma að þessum tilteknu atriðum. Í ráðuneytinu og til umfjöllunar núna hjá heilsugæslunni og læknunum og starfsfólkinu er endurskoðun á kröfu um tilvísun fyrir börn á aldrinum 2–18 ára í þeim tilgangi að létta álagið. Það er mjög mikið umfang og við yrðum líka að leita leiða með barnalæknum um hvernig það geti létt álagið. Við erum líka að meta, eins og hv. þingmaður kom inn á, tiltekin vottorð, einföldun á þeim, og að breyta þessari reglugerð sem hv. þingmaður vísaði hér til. (Forseti hringir.) Þannig að við yrðum að skoða öll þessi vottorð. Ég reikna með því að á næstu dögum gerum við breytingar á reglugerðinni (Forseti hringir.) í þeim tilgangi að létta álagið.
Ég vil taka það fram líka varðandi sjúkraþjálfara að þá eru fyrstu sex skiptin án tilvísana. Það voru breytingar sem voru gerðar hér (Forseti hringir.) fyrir allnokkru og það hefur létt verulega á álaginu. Það þarf ekki tilvísun heimilislækna þar í fyrstu sex skiptin.
(Forseti (OH): Forseti þarf greinilega einnig að minna hæstv. ráðherra á að virða ræðutímann.)